Segja að lóðaúthlutun til einkasjúkrahúss „tryggi hagsmuni Mosfellsbæjar“

Átta af níu bæj­ar­full­trúum telja veru­legan fjár­hags­legan ávinn­ing af fram­kvæmd­unum.

Segja að lóðaúthlutun til einkasjúkrahúss „tryggi hagsmuni Mosfellsbæjar“

Átta af níu bæj­ar­full­trúum Mos­fells­bæjar telja að eðli­lega hafi verið staðið að end­ur­út­hlutun lóðar í landi Sólvalla til MCPB vegna einka­sjúkra­húss og hót­els. Það hafi verið gert í sam­ræmi við lög og reglur og í takt við yfir­lýsta stefnu Mos­fells­bæjar sem sam­þykkt hafi verið á síð­asta kjör­tíma­bili af öllum flokkum í bæj­ar­stjórn.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu bæj­ar­full­trú­anna sem send var út í kjöl­far frétta­flutn­ings Stund­ar­innar frá því í gær. Var greint frá því að á fyrsta fundi bæj­ar­stjórn­ar­innar eftir sum­ar­frí hefði Sigrún Páls­dóttir, full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar, bókað harða gagn­rýni á vinnu­brögð full­trúa D- og S-lista í bæj­ar­ráði vegna úthlut­unar lóða til einka­sjúkra­húss og hót­els með þyrlu­palli. „Bæj­ar­full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar átelur þau vinnu­brögð full­trúa D- og S-lista í bæj­ar­ráði Mos­fells­bæjar harð­lega að hafa í sum­ar­fríi bæj­ar­stjórnar úthlutað óþekktum aðilum í trássi við eðli­lega verk­ferla sam­tals hund­rað og tutt­ugu þús­und m2 af landi Mos­fells­bæjar til eignar undir þrjá­tíu þús­und m2 einka­sjúkra­hús og -hótel með þyrlu­palli,“ segir í bókun Sigrúnar.

Átta af níu bæj­ar­full­trúum hafa nú brugð­ist við með yfir­lýs­ingu sem send var fjöl­miðlum. Undir hana rita Haraldur Sverr­is­son bæj­ar­stjóri, Bryndís Har­alds­dóttir, Haf­steinn Pálsson, Kolbrún G. Þor­steins­dóttir, Theódór Krist­jáns­son, Bjarki Bjarna­son, Anna Sigríður Guðna­dóttir og Ólafur Ingi Ósk­ars­son

„Fyr­ir­vari er af hálfu Mos­fells­bæjar um fram­lagn­ingu upp­lýs­inga um fjár­festa, við­skipta­á­ætlun, stað­fest­ingu á fjár­mögnun og greiðslu gatna­gerð­ar­gjalda. Ef þessum skil­yrðum verður ekki full­nægt mun Mos­fells­bær rifta samn­ingnum. Jafn­framt er með öllu óheim­ilt að veð­setja lóð­ina nema að fyrir liggi sam­þykki Mos­fells­bæjar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

„Fjár­hags­legur ávinn­ingur Mos­fells­bæjar yrði mik­ill ef af umræddum fram­kvæmdum verður.  Við erum þess full­viss að samn­ing­ur­inn um lóð­ar­út­hlut­un­ina tryggi hags­muni Mos­fells­bæjar, hvernig sem mál­inu lyktar.“

Hér má sjá við­tal Sig­ur­jóns M. Egils­sonar við Harald Sverr­is­son, bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæjar, um spít­ala­á­formin sem sýnt var á Hring­braut þann 24. júlí síð­ast­lið­inn:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár