Segir almannahagsmunum fórnað fyrir óljós fyrirheit um „gull og græna skóga úr vösum erlendra auðkýfinga“

Bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæjar og lóð­ar­hafa ber ekki saman um eign­ar­hald félags­ins MCPB ehf. Fulltrúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar í Mos­fellsbæ gagn­rýnir harð­lega áform um einka­sjúkra­hús.

Sigrún Páls­dóttir, full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar í Mos­fellsbæ, segir ótækt að ekki hafi verið kannað hvort þeir aðilar sem vilja reisa einka­sjúkra­hús og hótel með þyrlu­palli hafi fjár­hags­lega burði til fram­kvæmd­anna áður en þeim var úthlutað sam­tals 120 þús­und fer­metra landi í eigu Mos­fells­bæjar.

Sigrún Pálsdóttir
Sigrún Páls­dóttir bæj­ar­full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar í Mos­fellsbæ

Í sam­tali við Stundina segir hún ljóst að bæj­ar­yf­ir­völd hafi skort for­sendur til að meta arð­semi verk­efn­is­ins fyrir Mos­fell­inga. Í ljósi þess sé engin inni­stæða fyrir full­yrð­ingum meiri­hluta bæj­ar­full­trúa um að lóða­út­hlutun til einka­sjúkra­húss­ins „tryggi hags­muni Mos­fells­bæjar“ eða að veru­legur fjár­hags­legur ávinn­ingur sé af fram­kvæmd­unum. „Það hefur ein­fald­lega ekki verið kannað hvort svo er,“ segir Sigrún. 

Samkvæmt úthlut­un­ar­reglum Mos­fells­bæjar ber lög­að­ila sem sækir um lóð að leggja fram mat frá við­skipta­banka eða fjár­mála­stofnun ásamt grein­ar­gerð umsækj­anda sjálfs um að við­kom­andi geti staðið undir þeirri fjár­fest­ingu sem áætluð er. Þetta var ekki gert þegar lóð í landi Sól­vallar var úthlutað til fyr­ir­tæk­is­ins MCPB ehf.

Að því er fram kemur í yfir­lýs­ingu meiri­hlut­ans er hins vegar gerður fyr­ir­vari af hálfu bæj­ar­ins um fram­lagn­ingu upp­lýs­inga um fjár­festa, við­skipta­á­ætlun, stað­fest­ingu á fjár­mögnun og greiðslu gatna­gerð­ar­gjalda. „Ef þessu skil­yrðum verður ekki full­nægt mun Mos­fells­bær rifta samn­ingnum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Opnað fyrir veðsetningu lóða og kaupréttar

Úthlutun lóð­anna fylgir réttur til veð­setn­ingar og kaupa á þeim að fengnu leyfi Mos­fells­bæjar. Þetta gagn­rýndi Sigrún harð­lega á fundi bæj­ar­stjórnar í gær. „Þess ber að geta að handhöfum leyf­ist að veð­setja bæði lóðirnar, að fengnu leyfi Mos­fells­bæjar, og líka kaupréttinn. Engin grein er gerð fyrir því í leigu­samn­ingi hvaða skil­yrðum leyfi bæj­ar­ins fyrir veð­setn­ingu verður háð og óskar Íbúahreyf­ingin eftir útskýringu á þvi,“ sagði hún í ræðu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár