Gervimaður skrifaði pistla á Vísi um árabil

Guð­mundur Pálsson vél­smiður hefur skrifað pistla á Vísi í mörg ár. Svo virð­ist sem Guð­mundur Pálsson sé hins vegar ekki til og hafa pistl­arnir nú verið teknir úr birt­ingu.

Gervimaður skrifaði pistla á Vísi um árabil

Pistlar Guð­mundar Pálsson vél­smiðs hafa verið fjar­lægðir af frétta­síð­unni Vísi en grunur leikur á um að um gervi­mann hafi verið að ræða. Síð­ast­lið­inn föstu­dag birt­ist grein eftir Guðmund þar sem mann­kostum Donalds Trump, for­seta­fram­bjóð­enda Banda­ríkj­anna, var gert hátt undir höfði. „Ég fyllist við­bjóði þegar ég hugsa til þess að eng­inn af mögu­legum fram­bjóð­endum til emb­ætti for­seta Íslands hefur þorað að stíga fram sem sannur leið­togi líkt og Donald Trump hefur gert í Banda­ríkj­unum,“ skrif­aði Guð­mundur meðal ann­ars. Fljót­lega var hins vegar vakið athygli á því á sam­fé­lags­miðlum að Guð­mundur Pálsson vél­smiður virð­ist ekki vera til. Þegar leitað er að mynd­inni af honum sem fylgdi pistl­inum kemur upp erlend blogg­síða og er mað­ur­inn á mynd­inni því að öllum lík­indum breskur blogg­ari að nafn­inu Greg og býr í Finn­landi, en ekki Guð­mundur Pálsson vél­smiður. Þess má geta að sam­kvæmt Þjóðskrá Íslands bera alls 51 manns nafnið Guð­mundur Pálsson, þar af eru 33 með milli­nafn.

Kolbeinn Tumi Daðason, aðstoð­ar­ri­st­jóri frétta­stofu 365 og umsjón­ar­maður Vísis, seg­ist hafa séð umræðu á sam­skipta­miðl­inum Twitter um að Guð­mundur Pálsson vél­smiður væri að öllum lík­indum gervi­menni. „Við sendum honum póst og báðum hann um að gera grein fyrir því hver hann væri og fengum engin svör. Þangað til við heyrum eitt­hvað frá honum, sem 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár