Öskrað í koddann: Lifað eftir skyndilegan barnsmissi

Krist­ó­fer Alex­ander Kon­ráðs­son var fimm ára þegar hann kvaddi þennan heim. Eftir sitja ungir for­eldrar með stóra spurn­ingu. Af hverju hann? Ásrún Harð­ar­dóttir og Konráð Halldór Kon­ráðs­son hafa sótt hjálp í sorg­inni; fyrst var það áfalla­hjálp, síðan sál­fræði­með­ferð, þá Ný dögun og í nokkur ár hafa þau sótt hjálp í Birtu, sem er félag for­eldra barna sem lát­ast skyndi­lega. Þau tala um Krist­ó­fer, sorg­ina, doð­ann sem henni fylgir og hvað þau ráð­leggja for­eldrum sem missa barn.

Öskrað í koddann: Lifað eftir skyndilegan barnsmissi
For­eldrar Krist­ó­fers Ásrún Harð­ar­dóttir og Konráð Halldór Kon­ráðs­son upp­lifa lík­am­leg áhrif af son­ar­miss­inum. Mynd: Kristinn Magnússon

Á leið­inu hans Krist­ó­fers litla teygja blómin sig í átt­ina til sólar á sumrin og ævin­týra­leg snjó­korn virð­ast bera kveðju frá himnum þegar þau leggj­ast á stein­inn og jörð­ina á vet­urna. Mynd af Krist­ó­fer litla er líka greypt í stein­inn. Þar brosir hann eilífu brosi.

„Það var erfitt að velja leg­stein,“ segir faðir hans, Konráð Halldór Kon­ráðs­son. „Úrvalið er svo mikið og okkur fannst þurfa að vera ægi­lega stór minn­is­varði á leið­inu. Við fórum alveg hring­inn í þessu. Svo er þetta frekar lát­laus steinn.“

Konráð vinnur hjá steinsmiðju og vann sjálfur við leg­stein­inn. „Það var gott að gera þetta sjálfur fyrst maður hafði aðstöðu til.“ 

Duglegur drengur

6. júlí 2005.

Krist­ó­fer fædd­ist á fal­legum degi á Akranesi. Fjöl­skyldan bjó á Vopna­firði þar til hann var sex mán­aða, en þá fluttu þau til Reykja­víkur.

„Hann fædd­ist mjög stór og var alltaf frekar stór,“ segir móðir hans, Ásrún Harð­ar­dóttir. „Það var ótrú­lega mikið veik­inda­vesen á honum fyrstu árin. Hann var með mjög léleg lungu og fékk lungna­bólgu fimm sinnum eitt árið. Ég var í vinnu á þessum tíma og það end­aði með því að ég sagði upp vinn­unni því ég kunni ekki við að hringja svona oft og segj­ast vera með veikt barn. Hann fékk síðan sprautur og hresstist. Hann var í íþrótta­skóla þegar hann var fjög­urra ára þar sem voru krakkar á öllum aldri og hann klifraði upp í köðlum og rúll­aði upp þessum sjö og átta ára. 

Hann var ann­ars ánægð­astur ef hann fékk bara band­spotta og gat verið að binda í eitt­hvað, þræða og draga.“

„Hann var mikið í bílum og átti bygg­inga­krana sem hann lék sér svo­lítið mikið með. Hann var mjög nægju­samur og dug­legur að dunda sér,“ segir Konráð. „Hann lifði samt frekar hratt, bæði í hreyf­ingum og í tali. Hann var óða­mála í öllu sem hann sagði og var klár að koma hlut­unum frá sér og var algjör orku­bolti.“

Fór ungurKrist­ó­fer Alex­ander Kon­ráðs­son var fimm ára þegar hann kvaddi þetta líf. „Hann var mikið í bílum og átti bygg­inga­krana sem hann lék sér svo­lítið mikið með. Hann var mjög nægju­samur og dug­legur að dunda sér,“ segir Konráð, faðir hans.

Slysið í fjósinu

5. mars 2011.

Konráð fór til móður sinnar sem var bóndi fyrir vestan en fjöl­skyldan fór oft þangað í sveita­sæl­una. Krist­ó­fer var með í för og 16 ára dóttir Konráðs af fyrra sam­bandi, Ingi­björg, hitti feðgana fyrir vestan.

„Sam­býl­is­maður mömmu var að fara í snjó­sleða­ferð þá helgi þannig að við fórum vestur til að mjólka með henni. Ása og Sandra voru eftir heima.“

Það var tekið á móti þeim opnum örmum þegar í sveit­ina var komið en Krist­ó­fer þekkti ævin­týra­heim­inn í sveit­inni vel og var oft búið að segja honum hvað hann ætti að var­ast. 

Þau fóru út í fjós dag­inn eftir þar sem, fyrir utan kýrnar í bás­unum sínum, voru hundur og köttur sem hlupu um. Krist­ó­fer fannst vera gaman. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár