Nýtir eigin reynslu til að bæta samskipti annarra

Höfundur bók­ar­innar Sam­skipta­boð­orð­anna, Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir, kaf­aði ofan í líf sitt og greindi sína eigin erf­iða lífs­reynslu, á borð við ein­elti, kyn­ferð­is­legt ofbeldi og hjóna­bandsörð­ug­leika, út frá sam­skiptum sínum við aðra. Afrakstur þeirrar sjálfs­skoð­unar er komin út á bók sem Aðal­björg vonar að verði öðrum inn­blástur að bættum sam­skiptum.

Sambandið krufið í bókinni
Sam­bandið krufið í bók­inni Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir ásamt eigi­manni sínum, Heiðari Inga Svans­syni. Aðal­björg dró ekk­ert undan við skrif bók­ar­innar og skoð­aði meðal ann­ars sam­bandsörð­ug­leika þeirra hjóna út frá sam­skipta­boð­orð­unum sex. Mynd: Úr einkasafni

„Reynsla mín í námi, vinnu og líf­inu sjálfu hefur kennt mér að oft má rekja van­líðan til erf­ið­leika í sam­skiptum. Oft tengj­ast þessir erf­ið­leikar ein­hverju sem gerð­ist þegar við vorum lítil,“ segir Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og höf­undur bók­ar­innar Sam­skipta­boð­orðin, sem er nýkomin í hillur bóka­búða. Í henni kynnir Aðal­björg til sög­unnar sex sam­skipta­boð­orð sem ætlað er að hjálpa fólki að bæta sam­skipti sín. Bókin er sér­stök fyrir þær sakir að Aðal­björg notar dæmi úr eigin lífi til að sýna hvernig nýta megi sam­skipta­boð­orðin. 

„Þessi bók byggir á alls kyns sam­skiptum sem ég hef staðið í, allt frá því ég var lítil og fram til dags­ins í dag. Á und­an­förnum tveimur árum hef ég kafað ofan í líf mitt og skoðað sam­skipti mín við aðra í gegnum tíð­ina. Bókin er í raun saga mín í ljósi sam­skipta­boð­orð­anna. Hún er mjög per­sónu­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár