Tólf kennarar sögðu upp í Norðlingaskóla í dag: „Nú eru stíflurnar að bresta“

Tólf kenn­arar við Norð­linga­skóla sögðu upp störfum laust eftir klukkan 14 í dag. Ragnar Þór Pét­urs­son, trún­að­ar­maður kenn­ara við Norð­linga­skóla, segir að kenn­ur­unum sé full alvara með aðgerðum sínum. Hann telur að sumir þeirra sem sögðu upp í dag dragi upp­sögn sína ekki til baka, jafn­vel þó semj­ist.

Tólf kennarar sögðu upp í Norðlingaskóla í dag: „Nú eru stíflurnar að bresta“
Ragnar Þór Pét­urs­son Sagði upp starfi sínu sem kenn­ari við Norð­linga­skóla í dag.

Tólf kenn­arar við Norð­linga­skóla afhentu skóla­stjórn­endum upp­sagn­ar­bréf sín uppúr klukkan 14 í dag. Einn þeirra var Ragnar Þór Pét­urs­son, sem jafn­framt gegnir stöðu trún­að­ar­manns kenn­ara við skól­ann. Hann segir að kenn­ar­arnir sem um ræðir séu á ólíkum aldri og kenni á ýmsum skóla­stigum. 

Upp­sagn­irnar nú koma í kjöl­far upp­sagna 14 kenn­ara við Selja­skóla á mánu­dag. Ragnar Þór telur að fleiri eigi eftir að fylgja í kjöl­farið. „Þetta hefur legið í loft­inu í dálít­inn tíma. Menn hafa verið að leita leiða til að þurfa ekki að fara þessa leið, bíða eftir teiknum um að hlut­irnir myndu batna, en í raun hafa öll við­brögð sveit­ar­fél­ga­megin gefið ástæðu til svart­sýni. Nú eru bara stífl­urnar að bresta.“

Samn­inga­fundi grunn­skóla­kenn­ara og sveit­ar­fé­laga hjá rík­is­sátta­semj­ara í gær bar ekki árangur en fundað verður aftur á morgun. Tvisvar hafa kenn­arar hafnað samn­ingum sem hafa verið lagðir fyrir þá. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár