Farið fram á nauðungaruppboð hjá Birni Inga Hrafnssyni

Farið var fram á nauð­ung­ar­upp­boð hjá Birni Inga Hrafns­syni, aðal­eig­anda Vef­pressunnar, DV og fleiri fjöl­miðla. Hann fékk kúlu­lán frá Kviku banka með veiku veði. Hann hefur keypt sjón­varps­stöð og tíma­rita­út­gáfu á sama tíma og hann hefur verið í van­skilum. Hann segir málið ekki tengj­ast fjöl­miðla­rekstri hans, það hafi verið leyst og að óeðli­legt sé að fjalla um það.

Farið fram á nauðungaruppboð hjá Birni Inga Hrafnssyni
Björn Ingi Hrafns­son Hefur keypt upp fjölda fjöl­miðla á und­an­förnum árum en hefur á sama tíma verið í van­skilum.

Aðeins mán­uði eftir að til­kynnt var að Björn Ingi Hrafns­son, aðal­eig­andi Pressunnar og DV, væri að kaupa stærstu tíma­rita­út­gáfu lands­ins, var farið fram á nauð­ung­ar­upp­boð á mikið veð­settu húsi hans. 

Björn Ingi fékk 12 millj­óna króna kúlu­lán þremur dögum fyrir yfir­töku á blaða­út­gáf­unni Fótspori í fyrra sem átti að greiða fyrir ári síðan. Kvika banki fór fram á upp­boð á hús­eign Björns Inga á Más­stöðum 2 í Hval­firði vegna 14,4 millj­óna króna skuldar.

Á meðan Björn Ingi hefur verið í van­skilum hefur fjöl­miðla­veldi hans stækkað ört. Meðal fjöl­miðla sem Björn Ingi hefur keypt upp á und­an­förnum tveimur árum eru DV, Séð og heyrt, Nýtt Líf, Gest­gjaf­inn, Vikan, Reykja­vík, Akureyri, Vest­ur­land, Vest­firðir og sjón­varps­stöðin ÍNN. 

Samtals eru 90 milljón króna skuldir með veð í fast­eign hans í Hval­firð­inum frá Íslands­banka, Glitni HoldCo, Lands­bank­anum og Kviku banka. Síðasta lánið, upp á 12 millj­ónir króna, hlaut Björn Ingi í júlí í fyrra. Um var að ræða kúlu­lán til sex mán­aða. 

Björn Ingi segir í sam­talið við Stundina að um hafi verið að ræða lága upp­hæð og að málið hafi nú verið leyst. Hann segir að for­eldrar sínir búi á eign­inni sem farið var fram á upp­boð vegna og að málið teng­ist ekki fjöl­miðla­rekstri hans. „Þetta er algjört prí­vat­mál. Þetta er að mínu mati ekki frétta­efni, bara svo það liggi fyrir,“ segir Björn Ingi.

Hann er skráður 100% eig­andi að eign­inni, er hand­hafi lán­anna og var upp­boðið síð­ast aug­lýst í Lög­birt­inga­blað­inu 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn með nafni Björns Inga. „Ég var að segja þér það,“ segir Björn Ingi. „Þessi eign kemur fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum ekk­ert við. Hún teng­ist ekki því með neinum hætti. Þannig þetta er algjör­lega fyrir utan það.“

Fékk lánið frá Kviku dagana fyrir yfirtöku á blaðaútgáfu

Björn Ingi fékk lánið, með veði í mikið veð­settri eign í Hval­firði, þremur dögum áður en til­kynnt var um kaup hans á blaða­út­gáf­unni Fótspori í júlí 2015, sem gefur meðal ann­ars út Reykja­vík viku­blað og Akureyri viku­blað. Eftir kaupin var skipt um rit­stjóra á báðum blöðum og var einn þekkt­asti frjáls­hyggju­maður lands­ins, Björn Jón Bragason, gerður að rit­stjóra Reykja­víkur viku­blaðs.

„Það veit eng­inn hvaðan pen­ing­arnir koma í það sem menn eru að gera“

Sjálfur segir Björn Ingi við Stundina að 12 millj­óna króna lánið sem fékkst þremur dögum fyrir kaupin á Fótspori hafi verið ótengt kaup­unum. „Það er bara það sem verið er að gera. Það er verið að byggja þrjú lítil hús á jörð­inni. Svona 20 fer­metra sælu­hús eða svona litla svefn­kofa. Það er bara það sem málið snýst um. Það er ekk­ert annað. Þetta teng­ist ekk­ert fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu. Nú er stundum sagt að það veit eng­inn hvaðan pen­ing­arnir koma í það sem menn eru að gera, en þarna er það samt þannig að ég á ein­hverja eign og ég er að taka lán út á hana, er það ekki það sem menn eru að gera út um allt í sínu lífi? Það er eitt­hvert veð á bak við lán og skil­urðu hvað ég á við? Það er bara eðli­legt.“ 

Hús Björns Inga í Hval­firðiBjörn Ingi Hrafns­son náði að veð­setja hús sitt, sem er með bruna­bóta­mat upp á 56 millj­ónir króna, fyrir 90 millj­ónir.

Lánið umfram fasteignamat

Bruna­bóta­mat á fast­eignir Björns Inga á Más­stöðum 2 í Hval­firði er sam­tals 56,4 millj­ónir króna. Engu að síður eru lán upp á 90 millj­óna króna með veð í eign­inni. Samtals er fast­eigna­mat á ein­býli, bíl­skúr, ali­fugla­húsi, verk­færa­geymslu og ræktun á Más­stöðum 2 rétt rúmar 27 millj­ónir króna.

Lánin sem eru á eign­inni eru því 63 millj­ónir umfram fast­eigna­matið. En það segir ekki alla sög­una.

Ef bætt er við fjósi og hlöðu á Más­stöðum 3, sem Björn Ingi á einnig, hækkar fast­eigna­matið um rúmar tvær millj­ónir króna. Lóðamat er hins vegar 2.350.000 krónur sam­kvæmt fast­eigna­mati. 

„Þetta er margra hekt­ara jörð, sjáv­ar­jörð undir Akra­fjalli. Þú getur ekk­ert miðað bara við fast­eigna­matið, hún er miklu meira virði heldur en lánið. Það er fullt af húsum á jörð­inni og svo er hún margir hekt­arar. Þannig þetta er að sjálf­sögðu langt undir, það er miklu minna áhvílandi á jörð­inni og á hús­inu heldur en sem nemur verð­mæti hennar,“ segir Björn Ingi.

Upp­lýs­ingar um verð­mæti jarða eru ófull­komnar hjá Fast­eigna­mati rík­is­ins. Samkvæmt Fast­eigna­mati rík­is­ins er jörð Björns Inga milli Akraness og Grund­ar­tanga í Hval­firði um 7 til 8 hekt­arar að stærð. Sum­ar­bú­staða­lóðir í Hval­firð­inum eru seldar á rúm­lega milljón hver hekt­ari og má því gera ráð fyrir að verð­meta mætti eign­irnar á milli 60 til 70 millj­ónir króna með góðum vilja, sem er um 20 til 30 millj­ónir króna undir veð­setn­ingu þeirra. Þar sem lán Kviku er á 8. veð­rétti er staða bank­ans afar veik.

Fjárkúgunarmálið tengdist Kviku

Björn Ingi Hrafns­son er góður vinur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Mágur Sig­mundar Davíðs er for­stjóri Kviku, sem áður hét MP banki, sem veitti Birni Inga kúlu­lán í kringum kaupin á blaða­út­gáf­unni Fótspori, með veði í yfir­veð­settu húsi Björns Inga í Hval­firði.

For­sæt­is­ráð­herra og fjöl­miðla­eig­andiFor­sæt­is­ráð­herra og fjöl­miðla­eig­andi­Björn Ingi Hrafns­son sést hér á mynd Morg­un­blaðs­ins í afmæli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Sagt var frá því sum­arið 2015 að fyrr­ver­andi kona Björns Inga Hrafns­sonar, Hlín Ein­ars­dóttir, reyndi að fjár­kúga Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra með ásökun um að þeir tveir hefðu lagt á ráðin um yfir­töku Björns Inga á DV.

Hlín sagði síðar í við­tali við DV, sem Björn Ingi hafði eign­ast, að fréttir um að hót­unin hefði varðað aðkomu Sig­mundar Davíðs að yfir­töku á DV væru upp­spuni. „Ég get þó sagt það að fjöl­miðlar, eins og til dæmis Vísir, bók­staf­lega fabúler­uðu um inni­haldið í fyrstu fréttum af mál­inu og frétta­flutn­ingur um að það tengd­ist yfir­töku á DV er upp­spuni frétta­manna.“

Þó hefur komið fram í mál­flutn­ingi fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og ákæru gegn Hlín að hótun hennar hafi snúið að því að upp­lýsa um tengsl for­sæt­is­ráð­herr­ans við fjár­mál Vef­pressunnar, útgáfu­fé­lags Björns Inga.

Sjálfur hefur Björn Ingi sagt yfir­tök­una á DV hafa verið fjár­magn­aða með selj­enda­láni.

Umfangsmikil uppkaup á fjölmiðlum

Tilkynnt var um kaup Björns Inga á Máli og menn­ingu í maí í fyrra. Hann og Pressan ehf. tóku yfir rekstur sjón­var­sps­stöðv­ar­innar ÍNN í októ­ber. Í nóv­em­ber var síðan greint frá kaupum á tíma­rita­út­gáf­unni Birtíngi.

Eig­in­kona hans, Kolfinna Von Arn­ar­dóttir, til­kynnti um yfir­töku á Reykja­vík Fashion Festival í apríl í fyrra og kaup hennar og nokk­urra ann­arra á fata­hönnun JÖR í júní. Í lok nóv­em­ber greindi Guð­mundur Jör­unds­son, stofn­andi JÖR, frá því að fjár­festar hefðu brugð­ist.

Mánuðina áður hafði Björn Ingi þegar verið í van­skilum á fleiri en einu láni sínu. Auk þess átti Björn Ingi að hafa greitt upp 12 millj­óna króna lán frá Kviku, en ekki gert það, þegar til­kynnt var um kaupin á Máli og menn­ingu, Reykja­vík Fashion festi­val, fata­hönnun JÖR, sjón­varps­stöð­inni ÍNN og tíma­rita­út­gáf­unnar Birtíngs. 

Ekki er vitað hver staðan er á fjöl­miðla­út­gáfum hans, Press­unni og DV, þar sem hvor­ugt félagið hefur skilað árs­reikn­ingi frá árinu 2014. „Ég vísa bara í árs­reikn­inga og annað í þeim dúr,“ segir Björn Ingi, spurður út í stöðu félag­anna.

Þykir óeðlilegt að fjalla um málið

Björn Ingi segir að óeðli­legt sé að fjalla um boðun á nauð­ung­ar­upp­boði á eign hans. „ Lang­flest nauð­ung­ar­upp­boð sem eru aug­lýst verða ekki að veru­leika. Þú áttar þig á því að þetta er bara eins og ákveð­inn frestur, það bara gefur auga leið. Það er ekk­ert lengur í þessu máli. En það sem ég var hins vegar að höfða til þín með í þessu til­viki er að þarna er um jörð að ræða sem for­eldrar mínir búa á. Þau eru ekk­ert aðilar að mínum fjöl­miðla­rekstri. Föl­miðlar segja aldrei frá svo­leiðis fjár­hags­málum ein­stak­linga nema auð­vitað það sé bara eitt­hvað sem komi til og sé þá aug­lýst opin­ber­lega,“ segir Björn Ingi.

Björn Ingi er skráður til heim­ilis á eign­inni í Þjóðskrá ásamt eig­in­konu sinni. Boðun á nauð­ung­ar­upp­boð­inu var aug­lýst í Lög­birt­inga­blað­inu.

„Eins og í hrun­inu var annar hver Íslend­ingur sem lenti í því að vera aug­lýstur á nauð­ung­ar­upp­boð út af ein­hverjum mis­háum skuldum, en fjöl­miðlar sögðu aldrei frá því, var aldrei gert. Það er bara þetta sem ég á við. Því fólk gerir grein­ar­mun á. Ef þú telur að ein­hver önnur lög­mál gildi um mig heldur en aðra þá get ég svo sem ekk­ert gert í því, en mér þætti það mjög sér­stakt og þá frekar bara gert í því skyni að koma höggi á mig.“

Stefnur sendar

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var farið með stefnur til fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­fé­laga Björns Inga í vik­unni. Samkvæmt öðrum heim­ildum hafa verk­takar átt erfitt með að fá greiðslur frá útgáfum Björns Inga, Press­unni og DV. 

„Oftast er lofað að borga en síðan er reynt að draga það fram á lang­inn þangað til það er komið í lög­fræð­ing,“ segir einn verk­tak­inn, sem Stundin ræddi við, sem hefur glímt við langvar­andi van­skil af hálfu fjöl­miðla­fé­lags­ins.

Ekki fékkst sam­band við Arnar Ægisson, fram­kvæmda­stjóra Vef­pressunnar, og ekki hafa borist svör við spurn­ingum sem sendar voru á hann.

Samkrull viðskipta, fjölmiðla og stjórnmála

Björn Ingi var til umfjöll­unar í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis vegna mik­illa lán­taka hjá bönk­unum fyrir hrun og hags­muna­á­rekst­urs þeim tengdum. Hann var sá fjöl­miðla­maður sem mesta fyr­ir­greiðslu hafði fengið hjá bönk­unum. Félag hans fékk kúlu­lán hjá Kaup­þingi til að kaupa hluta­bréf í Kaup­þingi, Exista, Bakkavör og Spron. Skuldir félag­ins voru orðnar yfir hálfur millj­arður króna. Björn Ingi var aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra þegar hann fékk hluta af þeim lánum sem hann útveg­aði. Hann var aðstoð­ar­maður Halldórs Ásgríms­sonar þegar hann fékk 60 millj­óna króna kúlu­lán til kaupa á hluta­bréfum í bank­anum, ein­göngu með veði í bréf­unum sjálfum. Síðar var hann rit­stjóri við­skipta­blaðs­ins Mark­að­ar­ins á sama tíma og hann samdi um kaup á hluta­bréfum í Exista gegn láni. Hluta­bréfa­við­skiptin í gegnum Kaupþing héldu áfram meðan Björn Ingi starf­aði á Frétta­blað­inu og skrif­aði um mál­efni bank­ans. Félag hans, Caramba ehf, var úrskurðað gjald­þrota í sept­em­ber 2011. Sjálfur hlaut hann 100 millj­óna króna lán.

Björn Ingi steig til hliðar sem rit­stjóri Pressunnar þegar fyr­ir­greiðsla hans hjá bönk­unum sam­hliða störfum hans í stjórn­málum og fjöl­miðlum komst í hámæli. „Hér er ekk­ert ólög­legt á ferð­inni,“ sagði hann í yfir­lýs­ingu í apríl 2010. Hann lýsti því að hann hefði tapað öllu. „Við hjónin töp­uðum öllum okkar sparn­aði og miklu meira en það í hrun­inu.“ Þá hafði hann þegar stofnað Pressuna.is. Fjár­mögnun hennar kom að hluta til frá VÍS, sem var í eigu Exista, sem aftur var í eigu Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona. Þeir tveir fóru í meið­yrða­mál við DV og blaða­mann DV árið 2013 þar sem þeir kvört­uðu undan hat­ursá­róðri í þeirra garð vegna umfjall­ana um afskriftir á skuldum þeirra og arð­greiðslur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár