Tala látinna komin upp í 34 í Brussel

Sprengingar í Brussel. Flug­vellinum og öllum helstu samgöngu­leiðum lokað.

Sprengjuárás í Brussel
Sprengju­árás í Brussel Myndin er frá aðgerðum lög­reglu og hers í Brussel í nóv­em­ber. Mynd: Shutterstock

Fjölmargar sprengingar ollu því að minnst 34 manns létu lífið í hryðjuverka­árásum á flugvelli og lestarstöð í Brussel, höfuðborg Belgíu, fyrr í dag. Tuttugu eru sagðir hafa látist á lestar­stöðinni og 14 á flug­vellinum. Talið er að mun fleiri hafi særst alvarlega í árásunum.

Tvær sprengingar áttu sér stað stuttu við innritunar­fararsvæðið eftir kl. 8 í morgun en klukku­tíma seinna var önnur sprenging á Maelbeek Metro stöðinni nálægt samtökum Evrópu­sambandsins, ESB.

Flug­vellinum hefur verið lokað sem og öllum samgöngu­leiðum þar í kring. Árásirnar eru gerðar aðeins fjórum dögum eftir að Salah Abdeslam, einn helsti flótta­maðurinn í hryðjuverka­árásunum í París, var hand­tekinn í Brussel. 

Belgísku yfir­völdin hafa ekki staðfest hvað olli sprengingunum, né nákvæmlega hversu margir hafa særst eða látið lífið.

Charles Michel forsætis­ráðherra gaf það út á Twitter í dag að eins og staðan væri núna, ætti fólk að halda sig kyrru fyrir og sýna samstöðu á þessum sorgar­tíma í Belgíu.

Vill að öll Evrópa taki þátt í stríði gegn hryðjuverkamönnum

Frakkar sýna stuðning
Frakkar sýna stuðning Þessari mynd eftir skopmynda­teiknarann Plantu hjá Le Monde hefur verið dreift víða á samfélags­miðlum í dag.

Francois Hollande, Frakk­lands­forseti tók það fram á blaðamanna­fundi í dag að Frakkland og  Holland væru núna tengd sterkum böndum vegna hörmunganna í kjölfar hryðjuverka­árásanna í París í desember og núna í Brussel.

Forsetinn segist ætla að veita belgísku ríkis­stjórnina fullan stuðning og segir að stríðið á hendur hryðju­verkamönnum ætti að vera framfylgt af allri Evrópu, með öllum nauðsyn­legum aðferðum.

Hann segir frönsku ríkis­stjórnina þegar hafa gert ráðstafanir til að efla öryggi á landa­mærum og höfnum Frakk­lands.

Fréttin verður uppfærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár