Meintur árásarmaður var í felum í fjóra daga

Þriðji karl­mað­ur­inn hefur verið færður í gæslu­varð­hald grun­aður um aðild að hnífs­tungu í iðn­að­ar­hverfi

Meintur árásarmaður var í felum í fjóra daga
Súð­ar­vogur Hnífs­árásin átti sér stað í íbúð við Súðarvog. Þrír karl­menn sitja í gæslu­varð­haldi grun­aðir um aðild að árásinni.

Þriðji mað­ur­inn sem grun­aður er um aðild að sér­stak­lega hættu­legri lík­ams­árás sem átti sér stað í íbúð við Súðarvog þann 26. febr­úar síð­ast­lið­inn hefur verið hand­tek­inn og færður í gæslu­varð­hald. Hann hefur verið á flótta frá rétt­vís­inni í tæpa viku. Fórn­ar­lamb árás­ar­innar er karl­maður á fimm­tugs­aldri en tveir hinna meintu árás­armanna eru á þrí­tugs­aldri. Sá þriðji, sem fór í felur og var nýverið hand­tekin, er jafn­aldri fórn­ar­lambs­ins.

Húsið alræmt fyrir fíkniefnaneyslu

Einn þeirra sem grun­aður er um aðild að mál­inu hefur ítrekað verið dæmdur fyrir að aka undir áhrif amfetamíns. Íbúð­ar­húsið þar sem árásin átti sér stað er alræmt fyrir fíkni­efna­neyslu og er í iðn­að­ar­hverf­inu við end­ur­vinnslu­stöð­ina. Friðrik Smári Björg­vins­son yfir­lög­reglu­þjónn seg­ist í sam­tali við Stundina ekki geta sagt til eða frá hvort árásin teng­ist fíkni­efna­neyslu eða sölu fíkni­efna. Hann stað­festir þó að engin fíkni­efni hafi verið hald­lögð á vett­vangi. Friðrik Smári segir enn fremur að málið sé í rann­sókn og á meðan svo sé geti hann ekki tjáð sig frekar um málið.

Gripinn með blóðugar hendur

Samkvæmt grein­ar­gerð lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var óskað eftir aðstöð lög­regl­unnar aðfar­arnótt síð­ast­lið­ins fimmtu­dags vegna manna sem voru vopn­aðir skot­vopnum. Þegar lög­reglu­menn mættu á svæðið tók íbúi í hús­næð­inu á móti þeim og vís­aði þeim á aðra hæð. Þar mættu lög­reglu­menn einum úr hópi hinna grun­uðu þar sem hann stóð yfir fórn­ar­lambi árás­ar­innar með hníf. Fórn­ar­lambið var mjög blóð­ugt í and­lit og á lík­ama. Meintur ger­andi tjáði lög­reglu að hann hafi ein­ungis komið að fórn­ar­lamb­inu og að árás­ar­menn­irnir hefðu flúið á brott. Það þótti ótrú­verð­ugt þar sem blóð var á höndum manns­ins og fatn­aði.  

Réðust inn með byssur

Við leit í annarri íbúð í hús­næð­inu fannst annar maður, bróðir þess sem hafði þegar verið hand­tek­inn, en hann hafði falið sig á bak við hurð. Tveir íbúar í hús­næð­inu tjáðu lög­reglu að bræð­urnir hefðu ráð­ist inn, ásamt þriðja mann­inum, vopn­aðir skamm­byssum og riffli. Ekki er fylli­lega ljóst hvað menn­irnir ætl­uðu sér, þar sem þeim er gefið að sök að hafa ráð­ist fyrst að konu sem býr í hús­næð­inu og haft í hót­unum við hana, því næst á annan mann og skorið hann í and­liti, og að lokum á karl­mann á fimm­tugs­aldri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár