Marmaraegg

Óskar Ericsson kynnir spenn­andi aðferð við að elda egg, þar sem þau eru látin mar­íner­ast í te- og krydd­blöndu þar til þau hafa fengið á sig fal­lega marm­ara­á­ferð.

Marmaraegg
Marm­ara­egg Mynd: Stundin / Óskar Ericsson

Pásk­arnir koma óvenju snemma í ár og eru á næsta leiti. Eftir að hafa þraukað í gegnum dimman, kaldan og blautan jan­úar og síðan febr­úar er dag­inn loks farið að lengja og stytt­ist í að snjór­inn bráðni. Snæ­klukkur spretta upp, lóan kemur og hillur mat­vöru­versl­ana fyll­ast af súkkulaði­eggjum.  

Egg eru tákn frjó­semi og nýs lífs svo þau eiga vel við um pásk­ana, rétt eins og páskakan­ínur sem eru eins og allir vita, sem fara í gegnum Elliða­ár­dal­inn, Heiðmörk eða Öskju­hlíð­ina, að eru heldur betur frjósamar. Síðan fyrstu gælu­dýra­eig­end­urnir hér á landi fóru að sleppa lausum kan­ínum sem börnin nenntu ekki að sinna lengur hafa kan­ínur fjölgað sér á hverju ári. Á síð­ustu fimmtán árum hefur stofn­inn stækkað og á úti­svæði höf­uð­borg­ar­innar eru nú um nokkur hund­ruð kan­ínur sam­kvæmt skrif­stofu umhverf­is­gæða Reykja­vík­ur­borgar. Að und­an­skildum smá­vægi­legum skemmdum sem kan­ínur geta valdið í einka­görðum eru þær almennt ekki til ama heldur lífga þær upp á umhverfið. Annars halda minnk­ur­inn og uglan stofn­inum niðri, auk þess sem ein­staka kan­ínu­skinn verður fyrir bíl á Reykjanes­braut­inni.

Þær gleði­fregnir bár­ust í jan­úar að nú fást í fyrsta sinn líf­ræn egg í öllum helstu mat­vöru­versl­unum lands­ins, að Samkaup og Nettó und­an­skildum. Nesbú hf. fram­leiðir eggin og eiga svo sann­ar­lega skilið hrós fyrir fyr­ir­mynd­ar­fram­tak. Það tók fyr­ir­tækið tæp tvö ár að upp­fylla ströng­ustu kröfur til að fá líf­ræna vottun, en á meðal skil­yrða er bann við eit­ur­efnum og til­búnum áburði, fóðrið verður að vera líf­rænt vottað, fugl­arnir að hafa frjálsan aðgang að ryk­baði, hreiðri og set­priki innan dyra. Fugl­arnir hafa helm­ingi meira rými inni og eiga þess kost að verja einum þriðja af líf­tíma sínum úti. Allt skilar þetta sér í hágæða eggjum en mun­ur­inn finnst svo sann­ar­lega á bragð­inu og sést einnig á áferð­inni, enda fram­leiða ham­ingju­söm og heil­brigð dýr almennt betri afurðir. Samvæmt nýlegri kanadískri rann­sókn eru líf­ræn egg með allt að tvö­falt meira magn af A, E og D-vítamínum og Omega 3 en önnur egg. Þess vegna hvet ég les­endur til að styðja þetta fram­tak og kaupa líf­ræn egg, sem eru í flestum búðum aðeins 100 krónum dýr­ari en önnur.

Að þessu sinni er upp­skriftin að marm­ara­eggjum, eða te-eggjum. Eggin eru mar­íneruð og hægelduð í blöndu af te, sojasósu og 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár