Lundabúðir og hótel

Minja­gripa­sala hefur auk­ist veru­lega und­an­farin ár. Formaður Samtaka kaup­manna og fast­eigna­eig­enda við Laugaveg segir umhverfið í mið­bænum orðið fjand­sam­legt öðrum rekstri. Borg­ar­ráð hefur sett þak á upp­bygg­ingu hót­ela í mið­bænum.

Lundabúðir og hótel

Miðborg Reykja­víkur er fjöl­sótt­asti ferða­manna­staður á Íslandi. Aukning erlendra ferða­manna til lands­ins end­ur­spegl­ast þannig einna best í fjölgun hót­ela og minja­gripa­versl­ana í mið­bænum. Minja­gripa­sala hefur auk­ist umtals­vert á und­an­förnum árum og sífellt fleiri vilja bita af kök­unni. Á sama tíma dregst saman verslun Íslend­inga í mið­bænum. Erlendir ferða­menn greiddu með greiðslu­kortum sínum hér á landi 153,2 millj­ónir króna í gjafa- og minja­gripa­versl­unum í apríl síð­ast­liðnum, sem er 43 pró­senta hækkun frá síð­asta ári.

Lífvænlegur rekstur allt árið

Stundin ræddi við nokkra kaup­menn minja­gripa­versl­ana í mið­bænum og merkja þeir flestir aukna sam­keppni á þessum mark­aði á und­an­förnum fáeinum árum. Guðný Helga Guðna­dóttir er ein þeirra sem blaða­maður ræddi við en hún er versl­un­ar­stjóri hjá Islandiu við Banka­stræti. Guðný segir þróun síð­ustu ára fyrst og fremst fel­ast í aukn­ingu ferða­manna yfir vetr­ar­tím­ann. Aðspurð hvaða vörum ferða­menn séu að leita eftir segir Guðný það helst vera boli, lykla­kippur og segla. „Svo eru alltaf ein­hverjir sem leita að íslensku hand­verki. Það hefur breyst mikið á und­an­förnum árum og er orðið mun vand­aðra,“ segir hún.

„Mesta aukn­ingin í erlendum ferða­mönnum eru þessir „ódýr­ari“ ferða­menn eða „easy-jet“ ferða­mönnum. Þeir vilja ódýr­ari minja­gripi,“ segir Borgar Jón­steins­son, rekstr­ar­stjóri versl­un­ar­sviðs Pennans, í sam­tali við Stundina. Penninn rekur tvær minja­gripa­versl­anir í Reykja­vík auk þess sem minja­gripir eru seldir í versl­unum Pennans.

Umhverfið fjandsamlegt öðrum rekstri

Gunnar Guð­jóns­son, for­maður Samtaka kaup­manna og fast­eigna­eig­enda við Laugaveg, segir minja­gripa­versl­unum hafi fjölgað veru­lega á Lauga­veg­inum á sama tíma og aðrir versl­un­ar­eig­endur finna fyrir við­var­andi við­skipta­legum flótta. Umhverfið sé orðið fjand­sam­legt öðrum rekstri og kaup­menn séu mjög ugg­andi yfir minnk­andi verslun við Íslend­inga. „Miðað við það ástand sem bless­aður Lauga­veg­ur­inn á við að 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár