Listin að finna og elda bláskel

Óskar Ericsson yfir­gaf borg­ina og fann gnægð matar í nátt­úr­unni. Hér deilir hann leið­inni sem hann fór.

Þriðju­dagur, 5. apríl 2016

Í dag sagði Sig­mundur Davíð af sér. 

Maður sem laug sig til valda, ásak­aði þjóð­ina um ein­elti og sýndi aldrei auð­mýkt ræður ekki lengur. Og ekki kvaddi hann með reisn. Eins og ofbeld­is­fullur kær­asti neit­aði hann að flytja út, þótt að þjóðin væri búin að segja honum upp. Undir lokin réðst hann meira að segja  á sinn besta vin, og hót­aði að ef hann þyrfti að fara, þá myndi hann taka alla með sér.

Aldrei áður í sögu Íslands hefur for­sæt­is­ráð­herra sagt af sér vegna spill­ingar. Betur má ef duga skal, en þetta er óneit­an­lega frá­bært for­dæmi fyrir alla alþing­is­menn  sem hér á eftir ger­ast sekir um álíka alvar­lega athafnir. Ef menn ger­ast upp­vísir um að til dæmis ljúga um eignir eða svíkja undan skatti hljóta þeir að taka frum­kvæði og segja af sér, eins og tíðkast í öðrum vest­rænum ríkjum, enda er núna  komið for­dæmi fyrir því. Þetta hlýtur bara að vera byrj­unin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár