Nauðgað af þjóðþekktum manni og þögnin var þungbær

Ósk Gunn­laugs­dóttir hefur glímt við áfallastreituröskun frá því að henni var nauðgað, þegar hún var sautján ára, af þjóð­þekktum manni. Upplifði létti þegar hún sagði frá á Beauty tips.

Nauðgað af þjóðþekktum manni og þögnin var þungbær

Ósk Gunn­laugs­dóttir segir að mað­ur­inn sem nauðg­aði henni sé lands­þekktur og komi reglu­lega fram í fjöl­miðlum. Til þess að lág­marka hætt­una á því að heyra rödd hans hlustar hún ekki mikið á útvarp. Fyrir nokkrum árum var hún að keyra og heyrði þá lag sem hún hafði ekki heyrt áður. Þegar lag­inu lauk var flytj­and­inn kynntur til sög­unnar og þá var það hann. „Ég þurfti að nauð­hemla úti í kanti á Sæbraut­inni og æla,“ segir Ósk. Líkamleg við­brögð voru svo sterk. „Þetta var eins og að fá spark í mag­ann og því fylgdi gíf­ur­leg van­líðan, flök­ur­leiki og kvíða­kast í kjöl­farið.“

Ósk er ein þeirra kvenna sem opin­ber­aði reynslu sína í lok­uðu sam­fé­lagi Beauty tips á Facebook. Fjöl­margar konur hafa gert slíkt hið sama, dögum saman hafa frá­sagnir streymt inn á vef­inn undir merkj­unum #þöggun og #kon­ur­tala. Bylt­ingin hófst eftir að Guðrún Helga Guð­bjarts­dóttir birti færslu þar sem hún spurði hvort ein­hver hefði „lent í Sveini Andra“. Færslan var umdeild en þegar hún var fjar­lægð gerðu konur upp­reisn gegn þöggun um kyn­ferðis­ofbeldi.

Ósk hefur aldrei kært málið til lög­reglu og telur lík­legt að hún muni ekki gera það. „Það eina sem myndi koma út úr því er að það gæti hjálpað í öðrum málum gegn sama manni. Mitt er fyrnt,“ útskýrir Ósk.

Fékk sjokk daginn eftir

Ósk seg­ist hafa verið sautján ára þegar við­kom­andi maður bauðst til að keyra hana heim. „Við þurftum að fara heim til hans til að sækja bíl­inn. Þar sagð­ist hann ekki vera að fara að keyra. Síðan leiddi eitt af öðru. Ég var alveg spennt fyrir honum. Þetta var alveg sjar­mer­andi maður. Svo vildi hann ganga lengra en ég var til­búin til að leyfa og hætti ekki fyrr en hann var búinn að brjóta á mér. Hann kom vilja sínum fram. Síðan var ég vak­andi heima hjá honum alla nótt­ina þar til hann keyrði mig heim dag­inn eftir. Þegar hann kvaddi sagði hann: „Ég hringi í þig“, sem var mikið högg og sjokk því þá gerði ég mér grein fyrir því að hann áleit það sem hann gerði alveg eðli­legt.“

Þegar hún sagði vin­konu sinni frá þessu voru við­brögðin þess eðlis að hún bældi minn­ing­una um atvikið niður. „Ég var möl­brotin þegar ég sagði vin­konu minni frá þessu. Umræðan í skól­anum hafði verið á þann veg að 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár