Hefur kostað meira en milljarð að rukka vegfarendur við Hvalfjarðargöngin

Launa­kostnaður við að rukka vegfarendur í Hval­fjarðar­göngin er orðinn meira en milljarður króna. Ríkis­stjórnin stefnir á aukna gjaldtöku á þjóðvegum. GAMMA hvetur til einka­framkvæmda. Ríkis­endurskoðun taldi einka­framkvæmd ekki vera hagstæðari kost.

Jón Gunnarsson
Jón Gunn­ars­son Nýr sam­göngu­ráð­herra vill rukka veg­far­endur um gjald til að fjár­magna vega­fram­kvæmdir. Mynd: Pressphotos

Sú ákvörðun að fá einka­aðila til að sjá um gerð Hval­fjarðar­ganganna hefur haft í sér viðvarandi launa­kostnað vegna gjald­heimtu. Frá árinu 1999 hafa að meðaltali níu stöðu­gildi að jafnaði séð um að rukka vegfarendur dag og nótt. Kostnaðurinn hefur verið 55 til 87 milljónir króna á ári. Í fyrra var kostnaðurinn 75 milljónir króna. Það þýðir að 75 þúsund ferðir venjulegra fólksbíla um göngin á fullu verði þurfti til að borga laun þeirra sem rukkuðu fyrir ferðir um göngin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár