Hanna rekin: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“

Ólga í Efsta­leiti: Dag­skrár­stjóri segir reynslu­miklar útvarps­konur reknar til að „styðja við ágætis þróun á Rás 1“.

Frá vinstri: Þröstur Helgason dagskrárstjóri Rásar 1, Hanna G. Sigurðardóttir dagskrárgerðarmaður og Sigríður St. Stephensen dagskrárgerðarmaður.
Frá vinstri: Þröstur Helgason dag­skrár­stjóri Rásar 1, Hanna G. Sig­urð­ar­dóttir dag­skrár­gerð­ar­maður og Sigríður St. Steph­en­sen dag­skrár­gerð­ar­maður.

Þröstur Helgason, dag­skrár­stjóri Rásar 1, segir að upp­sagnir tveggja reyndra dag­skrár­gerð­ar­manna séu liður í skipu­lags- og áherslu­breyt­ingum sem ætlað sé „að styðja við ágætis þróun á Rás 1 á und­an­förnum vetri“.

Útvarps­kon­unum Hönnu G. Sig­urð­ar­dóttur og Sigríði Steph­en­sen var fyr­ir­vara­laust sagt upp störfum í síð­ustu viku. Báðar eru þær á sex­tugs­aldri og hafa starfað á Rík­is­út­varp­inu um ára­bil; Hanna hóf störf árið 1984 og Sigríður 1991. Á und­an­förnum árum hefur Hanna meðal ann­ars haft umsjón með þátt­unum Sam­fé­lagið í nær­mynd og Sjónmáli og Sigríður séð um tón­list­ar­þátt­inn Til allra átta.  

„Þetta kom eins og þruma úr heið­skíru lofti,“ segir Hanna í sam­tali við Stundina og bætir við: „Ég spurði minn yfir­mann [Þröst Helgason, dag­skrár­stjóra, innsk. blaðam.] hvort hann hefði haft eitt­hvað út á mín störf að setja, en

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár