Deit­menn­ing á fundum Stemn­ingin á fundum er mis­jöfn eftir deildum, sums staðar er partí­stemn­ingin meiri og marka­leysið sömu­leiðis. Mynd: Kristinn Magnússon

Átti að fyrirgefa ofbeldið af því að hann var í AA

AA er félags­skapur karla og kvenna sem sam­hæfa reynslu sína, styrk og vonir svo þau megi leysa sam­eig­in­legt vanda­mál sitt, áfeng­is­bölið. Eina inn­töku­skil­yrðið er löngun til að hætta að drekka. Þar er ekk­ert yfir­vald, engar reglur eða úrræði til að taka á málum. Stemn­ing­unni á sumum fundum er lýst sem kjöt­mark­aði þar sem eldri menn leita í nýliða­stelpur. Dæmi eru um að konur mæti ofbeld­is­mönnum í AA sam­tök­unum og sú krafa gerð til þeirra að þær fyr­ir­gefi ofbeldið á þeim for­sendum að þeir séu edrú. Það hefur endað illa.

Ég var nítján ára þegar ég hætti að drekka. Ég var búin að skemmta mér aðeins of vel, aðeins of lengi, og var ekki í tengslum við fólkið mitt, sem var hissa, sárt og reitt yfir fram­göngu minni. Ítrekað hafði ég brotið á þeim og sjálfri mér. Aðallega sjálfri mér. Ég leit­að­ist eftir því að tína upp brotin og tjasla þeim aftur saman, styrkja sjálfs­mynd­ina og finna sjálfa mig á ný. Þaðan lá leiðin upp á við.

Næstu árin var ég í AA þar sem ég eign­að­ist marga af mínum bestu vinum sem hafa fylgt mér fram á þennan dag. Ég er þakk­lát fyrir það líf sem ég eign­að­ist í og með AA sam­tök­unum, þótt ég hafi fljótt þurft að læra að forð­ast leið­indi, bak­tal, væl og karla sem höfðu óþægi­lega mik­inn áhuga á stelpum sem voru að koma nýjar inn, ungar, dálítið brotnar og létu reyna á mörkin. Ég lærði líka að það sem mér hafði verið sagt um sam­stöð­una í sam­tök­unum var ekki alls­kostar rétt. Jú, auð­vitað var viss hópur sem stóð saman í þessu stríði sem við háðum við Bakkus og fylgi­fiska hans, en það átti ekki við um alla. Sumir voru enn fastir í gamla far­inu, óheið­ar­leik­anum og eig­ingirn­inni sem ein­kenndi líf í neyslu, vildu bara fá sitt út úr veru sinni í sam­tök­unum og kærðu sig koll­ótta um afdrif náung­ans. Þarna var alls­konar fólk, með mis­mun­andi sögu að baki og í mis­góðum bata.

Einn dag­inn mætti ég á fund og sá þar mann ég þekkti og bara af illu. Hann hafði verið í ást­ar­sam­bandi við bestu vin­konu mína og lagt á hana hendur. Oft. Svo oft að ég hafði ekki lengur tölu á því hversu oft hann hafði gengið í skrokk á henni svo stórsá á. Hún fór brotin upp á spít­ala. Einu sinni leit­aði hún til mín eftir árásir hans, illa vönkuð eftir höf­uð­högg. Hann átti það til að sparka í haus­inn á henni. Á svip­uðum tíma fékk hún fyrsta krampakastið. Í hvert sinn sem ég vissi af þeim saman ótt­að­ist ég um afdrif hennar.

Af veikum mætti reyndi ég á sínum tíma allt hvað ég gat til þess að forða henni frá þessum manni, tala um fyrir henni, fá hana til þess að slíta sam­band­inu og standa með sjálfri sér. Þegar það gekk ekki reyndi ég að tryggja að hún væri ekki ein með honum, að við værum þá alla­vega saman, hann myndi þá kannski ekki leggja á hana hendur. Það var rangt. Í stað þess að halda aftur af sér beitti hann hana ofbeldi fyrir framan mig, eða okkur báðar. Það voru líka atvik þar sem hann beitti mig ofbeldi, án þess að hún væri nærri. Ofbeld­is­at­vikin voru mörg, mis­gróf en alltaf vond. Ég ber enn ör eftir hann.

Við erum ekki einu stelp­urnar sem hann hefur beitt ofbeldi. Ég veit um fleiri. Of margar til þess að ég vilji nokkurn tím­ann hafa hann nálægt mér eða mínum. En þarna var hann mættur. Í AA. Á fund­inn minn. Þar sem ég þekkti hvern mann. Eina inn­töku­skil­yrðið í AA sam­tökin er löngun til að hætta að drekka og ég hugs­aði með mér að það væri þó skárra að vita af honum þar að reyna að gera eitt­hvað í sínum málum en úti að meiða fólk. Þannig að ég reyndi að hunsa hann, láta sem ég sæi hann ekki þar sem hann sat á móti mér. Svona gekk þetta í nokkur skipti, þar til hann elti mig út eftir fund, greip í mig og bað um síma­númer vin­konu minnar því hann hefði í hyggju að taka 9. sporið á henni. Ég var furðu lostin. Ætlaði hann virki­lega að hringja í hana og biðja hana afsök­unar á öllu ofbeld­inu sem hann beitti hana, mig og fleiri nána aðstand­endur hennar? Hvernig gat hann beðist afsök­unar á því? Ef hann hefði vel­ferð hennar í huga gat hann þá ekki látið hana í friði? Ef þetta væri rétt­mæt beiðni, ætti hann þá ekki að biðja mig afsök­unar líka? Ég neit­aði að gefa honum núm­erið en var illa brugðið.

Hendur mínar skulfu þegar ég kom út í bíl, þar sem AA félagar mínir og vinir biðu. Ég sagði þeim hvað hefði gerst, að hann hefði nálg­ast mig með þessa und­ar­legu beiðni. Ég vissi svo sem að hann væri sið­blindur og gat skilið að hann hefði lent á lélegum sponsor, en ég gat ekki skilið við­brögðin sem ég fékk þegar ég sagði sam­ferð­ar­fólki mínu í AA frá þessu, fólki sem ég var í trún­að­ar­sam­bandi við og þekkti þessa sögu, því ég fékk að heyra að auð­vitað ætti ég að gefa honum tæki­færi, hann væri að reyna sitt besta og reyna að vera edrú. Þeir sem það gerðu ættu rétt á fyr­ir­gefn­ingu. Skömmu síðar fór hann aftur í neyslu. Eftir þetta hætti ég í sam­tök­unum og ákvað að fara mínar eigin leiðir, þar sem ég upp­lifði mig örugga.

Með myrkur í augum

Atvikið hafði ekki minni áhrif á vin­konu mína, sem var þá nýkomin inn í AA sam­tökin og bjó á áfanga­heim­ili fyrir konur sem hafa lokið áfeng­is­með­ferð. „Ég gleymi því ekki þegar ég hljóp í síð­asta skipti út frá honum,“ segir hún. „Þá var hann kom­inn með myrkur í augun og ég átt­aði mig á því að hann ætl­aði að fara að berja mig. Ég leit á úti­dyra­hurð­ina og sá að hún var ólæst. Ég reyndi að láta sem ekk­ert væri, halda spjall­inu við hann gang­andi á meðan ég þótt­ist ­hringja á leigu­bíl og fara svo fram að kíkja eftir bílnum. Síðan tók ég á rás, hljóp að hurð­inni og út. Við bjuggum við hlið­ina á vídjó­leigu og ég náði að hlaupa þangað. Hann elti mig og reyndi að fá mig aftur heim, lof­aði að vera ekki vondur en ég tal­aði ekki einu sinni við hann. Ég komst burt og þetta var í síð­asta sinn sem ég hitti hann, eftir að hann hafði beitt mig langvar­andi grófu lík­am­legu ofbeldi og kyn­ferð­is­of­beldi.

Ég bjó á áfanga­heim­ili fyrir konur sem voru að reyna að ná bata frá alkó­hól­isma þegar hann kom í AA sam­tökin. Skömmu síðar byrj­aði hann með stelpu sem bjó þar með mér og fór að venja komur sínar þangað. Af því að ég var á merktum bíl vissi hann vel að ég væri þar. Og ég vissi alveg af hverju hann var að púkka upp á þessa stelpu. Enda kom fljót­lega á dag­inn að hann ætl­aði sér að nálg­ast mig. Hann fór að hringja, og hringja og hringja. Hann hringdi lát­laust þar til ég varð að skipta um síma­númer.

Þá reyndi hann að nálg­ast mig í gegnum vin­konu mína og sagð­ist ætla að taka 9. sporið á mér. Í 9. spor­inu segir að við bætum fyrir brot okkar milli­liða­laust svo fram­ar­lega sem það særi engan. Það er ýmis­legt sem þú getur ekki beðist afsök­unar á. Ekki þegar þú hefur gert eitt­hvað svona hræði­legt.

Ég var í algjöru losti á þessum tíma. Ég var svo hrædd við hann því ég vissi ekki hverju hann tæki upp á næst. Ég trúði honum vel til þess að brjót­ast inn og ryðj­ast inn í her­bergið mitt. Annað eins hafði hann nú gert.

Að lokum gat ég ekki verið lengur á áfanga­heim­il­inu og leit­aði skjóls hjá for­eldrum mínum. Þetta varð líka til þess að ég hætti í AA sam­tök­unum um tíma. Enn í dag kemur upp í mér ótti um að ég muni hitta hann ein­hvers staðar og hann reyni að tala við mig.“

„Óttalegt feðraveldi“

Eru konur öruggar í AA? Hátt í fimmtán konur sem hafa verið í lengri eða skemmri tíma í AA lýsa hér á eftir reynslu sinni af sam­tök­unum. Allar sam­mælt­ust um að þær ættu AA sam­tök­unum margt að þakka. Vegna AA hefðu þær náð að koma undir sig fót­unum, öðl­ast bata frá alkó­hól­ism­anum og leggja drög að betra lífi. Engu að síður væri ýmis­legt innan sam­tak­anna sem væri vert að vekja athygli á og ræða. Undir það tóku þeir karlar sem Stundin ræddi við, þeir könn­uð­ust líka vel við þessar aðstæður. Enginn við­mæl­andi Stund­ar­innar treysti sér þó til að tala undir nafni vegna erfða­venj­anna. Erfða­venjur AA sam­tak­anna eru grunn­ur­inn sem starfið byggir á, eins­konar lög, og þar er kveðið á um nafn­leynd. Allar vildu þær virða það. Við not­umst því aðeins við fornöfn eða gefum þeim önnur nöfn.

„Þetta er ótta­legt feðra­veldi, eins og svo margt annað,“ segir Lovísa, sem hefur verið virk í AA sam­tök­unum jafn lengi og hún hafði lifað þegar hún fór á sinn fyrsta fund, eða í 17 ár. Hún er af Uxa kyn­slóð­inni, stráka­stelpa sem kom inn með vinum sínum og kynnt­ist ekki sálu í sam­tök­unum fyrr en eftir eitt og hálft ár edrú. „Ég hef oft hugsað um þetta. Bókin var skrifuð af körlum á þeim tíma sem konur voru mjög langt leiddar þegar þær komu inn í AA. 

Í bók­inni er kafli til eig­in­kvenna, þar sem þær eru ávarp­aðar sem aðstand­endur. AA bókin er skrifuð út frá körlum, fyrir karla. Af ein­hverjum ástæðum hald­ast konur ekki lengi í AA. Ég veit ekki hvað veldur – hvort þetta sé of karllægt prógram.“

Talandi um bók­ina. Margar kon­urnar töl­uðu um hana og mik­il­vægi þess að bókin yrði upp­færð. Eins og ein sagði: „Þetta er eins og ef við værum enn að lesa Svarta Sambó. Þetta er fárán­legt.“

Eru konur öruggar í AA?

Spurn­ing­unni hefur áður verið varpað fram. Eru konur öruggar í AA? var tit­ill á grein eftir skemmti­kraft­inn Amy Dresner sem birt­ist á vef­síðu The Fix – addiction and recovery, straight up. Þar benti hún á að helsti kostur AA sam­tak­anna sé jafn­framt þeirra helsti galli, sú stað­reynd að þau eru öllum opin. Á meðal frægð­ar­manna og millj­óna­mær­inga séu fríkin, krípin og glæpa­menn­irnir. Þangað færi fólk þegar það væri lík­am­lega, fjár­hags­lega og and­lega komið í þrot. Fyrir vikið væru fund­irnir fullir af fólki sem er brotið og við­kvæmt. AA sam­tökin væru því ­para­dís tæki­fær­is­sinna.

Hún sagði sögur af nauðg­unum, sponsorum sem hefðu notað vald sitt til að þvinga spons­íur til kyn­maka, sponsorum sem hefði greitt spons­íum fyrir kyn­líf, stelpum sem hefðu fallið og leitað til edrú manna sem mis­not­uðu sér aðstæð­urnar til að ná sér í auð­veldan drátt. Það ætti svo sem við alls staðar að fólk mis­not­aði annað fólk, en alkó­hólistar og fíklar væru almennt stjórn­samir og óheið­ar­legir. Fleiri greinar á sama miðli fjalla um þetta mál­efni.

Lovísa tekur undir nið­ur­stöður Amy. Það að eng­inn sé æðri öðrum í AA var það sem seldi henni sam­tökin á sínum tíma og gerði það að verkum að hún ákvað að fara á fundi. „En þegar ég fór í með­ferð sautján ára hitti ég þar mann sem var greini­lega búinn að brenna sig á AA sam­tök­unum. Á fyrsta degi bað hann mig um að gleyma því aldrei að það er rosa­lega veikt fólk í AA sam­tök­unum. Þetta voru góðar upp­lýs­ingar. Við segjum oft í gríni að það eigi ekki að koma þér neitt á óvart að það sé veikt fólk í AA.“ 

Nú er sama spurn­ing meg­in­þema heim­ild­ar­mynd­ar­innar The 13th Step sem var sýnd á Cannes kvik­mynda­há­tíð­inni á dög­unum, þar sem sagt er frá ofbeldi sem við­gengst innan sam­tak­anna í Banda­ríkj­unum, án þess að gripið sé til ráð­staf­ana.

Mikil breyting orðið á samtökunum

Við­mæl­endur Stund­ar­innar voru ósam­mála um ýmis­legt. Ein sagði að það væri mikil kynjaslag­síða í sam­tök­unum. Önnur sagð­ist vera frjáls í anda og að hún léti feðra­veldið ekk­ert trufla sig. Sú þriðja sagði að nú væri jafn­rétti orðið algjört í sam­tök­unum. Hún var ein þriggja kvenna sem komu fyrstar inn í AA á Íslandi. Þær eru allar komnar yfir sjö­tugt í dag og enn edrú eftir 35 ár. „Þetta eru bestu sam­tök sem ég hef kynnst á ævi minni.“

Henni þykir gott að vera kona í AA og segir að þar sé mikil virð­ing borin fyrir konum, þær tali á stóru fund­unum, séu í ábyrgð­ar­stöðum og með í öllum nefndum. „Það hefur orðið mikil breyt­ing á AA frá því sem áður var. Þegar ég kom inn vorum við bara þrjár og þá voru konur ekk­ert að leiða fundi eða í ábyrgð­ar­stöðum, enda karl­arnir búnir að vera ein­ráðir í nokkur ár. Það er jafn­rétti í AA núna.“

Flestar beittar ofbeldi

Í rann­sókn sem var fram­kvæmd á árunum 2000 og 2001 kemur fram að konur séu veik­ari þegar þær koma til áfengis­með­ferðar en karlar, þær hafi fleiri frá­hvarfsein­kenni, séu lengur að jafna sig og hafi fleiri ein­kenni alvar­legrar áfengis­sýki, lík­am­leg og and­leg. Þær séu einnig til­finn­inga­næm­ari og und­an­láts­sam­ari, láti oftar undan þrýst­ingi og reyni frekar að bera í bætifláka fyrir sig, en karlar.

Rann­sóknin var gerð á 516 sjúk­lingum sem komu til með­ferðar á Vog, Teig og deild 33A á Land­spít­al­anum. Konurnar sem tóku þátt lýstu mark­tækt meiri kvíða en karl­arnir, auk þess sem þær höfðu mun meiri lík­am­leg ein­kenni, fundu oftar fyrir skjálfta um allan lík­amann, hand­skjálfta, svita, ótta, ofsókn­ar­kennd og örvænt­ingu. Þá fundu þær frekar fyrir skömm, sekt­ar­kennd og lít­illi sjálfs­virð­ingu, en karlar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár