Katrín bendir á ósamræmi í ræðum forsætisráðherra og fjármálaráðherra

Áætlun um losun hafta var kynnt á blaða­manna­fundi í Hörpu í hádeg­inu. Byggir á aðgerða­á­ætlun frá 2011. Gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir sam­ráðs­leysi og seina­gang.

Katrín bendir á ósamræmi í ræðum forsætisráðherra og fjármálaráðherra

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, veltir fyrir sér hvers vegna áætlun um losun gjald­eyr­is­hafta hafi ekki litið dags­ins ljós miklu fyrr, í ljósi þess hversu miklir hags­munir séu í húfi, en áætl­unin var kynnt í hádeg­inu í dag. Þá spyr hún einnig hvers vegna áætl­unin var ekki unnin í nán­ara sam­ráði við stjórn­ar­and­stöð­una. 

„Ég fagna því rík­is­stjórnin hafi loks­ins kynnt aðgerðir um losun hafta. Í kynn­ingu Seðla­banka­stjóra í dag kom fram að áætlun rík­is­stjórn­ar­innar bygg­ist á þeirri aðgerða­á­ætlun sem var sam­þykkt 2011 og hefur verið útfærð nánar. Ég hef tals­vert spurt um þetta í þing­inu og fengið mis­mun­andi svör, stundum var sagt að unnið væri að nýrri áætlun sem yrði að vera leyni­leg og að áætl­unin frá 2011 væri byggð á algjör­lega röngum for­sendum,“skrifar hún og vísar í ræðu for­sæt­is­ráð­herra frá því í febr­úar á þessu ári. „En stundum var bent á að unnið væri sam­kvæmt áætl­un­inni frá 2011,“ skrifar Katrín og vísar í ræðu Bjarna Bene­dikts­sonar frá því í októ­ber 2013, en þar sagði hann að áfram væri unnið eftir þeirri áætlun sem hefur verið í gildi. 

„Nú virð­ist hið síð­ar­nefnda komið á dag­inn og því veltir maður því eðli­lega fyrir sér hvers vegna nið­ur­staðan sem kynnt var í dag leit ekki dags­ins ljós miklu fyrr í ljósi þess hversu miklir hags­munir eru í húfi og af hverju hún var ekki unnin í nán­ara sam­ráði við stjórn­ar­and­stöð­una. En aðal­málið er að hags­munir almenn­ings verði tryggðir og góð sátt náist um þær útfærslur sem nú hafa verið kynntar,“ skrifar Katrín Jak­obs­dóttir um málið. 

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, skrif­aði einnig um málið á Facebook síðu sinni í dag en hann sagði góðu frétt­irnar þær að hafta­til­lög­urnar væru miklu nær hug­myndum Sam­fylk­ing­ar­innar en Fram­sóknar vorið 2013. „Við vildum þá nýta svig­rúm í samn­ingum við slita­búin til að lækka opin­berar skuldir. Vera Fram­sóknar í skýja­borgum í tvö ár er þjóð­inni dýr,“ skrifar Árni Páll. 

Fréttir ekki á rökum reistar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði á Facebook-síðu sinni í morgun að stór og ánægju­legur dagur væri nú runn­inn upp. „Í hádeg­inu verður kynnt áætlun um afnám gjald­eyr­is­hafta og ýmis atriði sem tengj­ast því. Mikil und­ir­bún­ings­vinna, unnin af ótrú­lega snjöllu og öfl­ugu fólki, hefur staðið lengi. Fram­kvæmdin hófst svo í gær­kvöldi, þegar Alþingi sam­þykkti eins konar und­an­fara­frum­varp á óvenju­legum tíma,“ skrifar hann. 

Á for­síðu Frétta­blaðs­ins í morgun var sagt frá því að leki á upp­lýs­ingum um áætl­un­ina til DV fyrir helgi hefði skapað þrýst­ing og gert laga­setn­ing­una í 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár