Katrín: „Ekki tímabært“ að endurskoða andstöðu gegn samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn

Stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna virð­ist ekki vera úti­lokað. Katrín Jak­obs­dóttir segir þó „ekki tíma­bært“ að end­ur­skoða afstöðu sína um að vilja ekki stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Bjarni Bene­dikts­son mun ræða við hana.

Katrín: „Ekki tímabært“ að endurskoða andstöðu gegn samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn
Katrín Jak­obs­dóttir Hefur sagt stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum ekki hafa verið á dag­skránni. Mynd: Pressphotos

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er nú í lyk­il­stöðu vegna mögu­legrar stjórn­ar­mynd­unar, þar sem Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, kveðst ekki spenntur fyrir rík­is­stjórn með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum og gefur til kynna að hann vilji fremur stjórn með Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokknum. Katrín segir í sam­tali við Stundina að það sé „ekki tíma­bært“ að end­ur­skoða and­stöðu við rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en vísar á Bjarna Bene­dikts­son. „Maðurinn er að fá umboð og er vænt­an­lega með eitt­hvað plan.“

Katrín hefur fram að þessu lagt áherslu á rík­is­stjórn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna; Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Bjartrar fram­tíðar. En hún virð­ist vera ómögu­leg. Sam­fylk­ingin hefur sagt að hún ætli ekki í rík­is­stjórn, og fimmti nauð­syn­legi flokk­ur­inn fyrir meiri­hluta, Viðreisn, leggjst gegn slíku „Pírata­banda­lagi“. 

Katrín lýsti því yfir í sam­tali við Stöð 2 viku fyrir kosn­ingar að VG vildi síður stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. „Mín eigin afstaða er bara í takt við þá stefnu sem mín hreyf­ing hefur tekið og sam­þykkt meira að segja í ályktun á þessu ári um að við sjáum fyrir okkur, ef stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fái til þess umboð, þá eigi þeir að mynda hér rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum.“

Katrín hefur hins vegar ekki úti­lokað alfarið sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. 

Björt framtíð vill Sjálfstæðisflokk og VG

Óttarr tók af skarið í morgun og sagði að hann væri ekki spenntur fyrir hægri­st­jórn með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokki.

„Við höfum talað fyrir því að við myndum gjarnan vilja sjá ein­hvern vísi að sam­starfi yfir miðj­una, hvort það væri þetta fimm flokka módel eða módel þar sem bæði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og VG kæmi að,“ sagði Óttarr við Stundina í morgun. Þar sem Viðreisn hefur bæði úti­lokað sam­starf með frá­far­andi rík­is­stjórn­ar­flokkum báðum í einu, og lagst gegn fimm flokka rík­is­stjórn, stendur eftir mögu­leik­inn á rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna, ásamt þriðja flokki. Þar sem Viðreisn er hægri­s­inn­að­ari en Björt fram­tíð má gera ráð fyrir því að Vinstri grænir vilji fremur fá Bjarta fram­tíð inn sem þriðja flokk­inn heldur en Viðreisn.

Stundin ræddi við Katrínu í morgun. 

Hefur afstaða VG til rík­is­stjórn­ar­mynd­unar með Sjálf­stæð­is­flokknum breyst? Þið vilduð ekki fara í rík­is­stjórn með þeim?

„Nei. Það hefur ekk­ert breyst,“ sagði Katrín. 

Bjarni ræðir við alla

Bjarni Bene­dikts­son sagði eftir fund með for­seta Íslands á Bessa­stöðum, þar sem hann fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð, að hann ætl­aði að ræða við alla flokka. 

Aðspurð um hvort flokkur hennar sé til í að end­ur­skoða afstöðu sína, og þar með and­stöðu gegn rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum, segir Katrín: „Ekki tíma­bært að ræða það. Maðurinn er að fá umboð og er vænt­an­lega með eitt­hvað plan.“

Flokks­leið­tog­arnir á kosn­inga­nóttHelstu sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna eru Píratar, Vinstri grænir og Viðreisn.

„Spennandi“ samstarf VG og Sjálfstæðisflokks 

Gera má ráð fyrir því að Bjarni Bene­dikts­son muni ræða við Katrínu Jak­obs­dóttur um mögu­legt stjórn­ar­sam­starf, þar sem hann hyggst ræða við alla. Meðal þeirra sem hafa óbeint lagt til slíkt sam­starf eru Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, frá­far­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í kosn­inga­þætti RÚV á kosn­inga­nótt. Hún sagði slíkan mögu­leika „ekki óspenn­andi“. Þar sem Björt fram­tíð telur hægri stjórn vera „ekki spenn­andi“ er lík­legra að reynt verði á 35 þing­manna rík­is­stjórn þvert yfir miðju frá hægri til vinstri, með Sjálf­stæð­is­flokknum, Vinstri grænum og Bjartri fram­tíð, ef VG bakkar frá yfir­lýs­ingum sínum um að vilja ekki rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki.

Loks er sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks tækni­lega mögu­legt, en Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, lof­aði fyrir kosn­ingar að ganga ekki í slíkt rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Í sam­tali við Stundina rétt í þessu sagð­ist Benedikt ennþá úti­loka Fram­sókn­ar­flokk og Sjálf­stæð­is­flokk í sam­eig­in­legri rík­is­stjórn, en ekki úti­loka neinn ein­stakan flokk. Hann sagði Bjarna ekki hafa haft sam­band við Viðreisn núna.

Bjarni sagði á Bessa­stöðum í morgun að hann vildi ekki úti­loka Fram­sókn­ar­flokk­inn. „Það er fullur vilji til að ræða við Fram­sókn­ar­flokk­inn.“

Viðreisn ekki í sambandi við Bjarna

Benedikt Jóhann­es­sonVirðist ekki vera í virkum við­ræðum um Við­reisn­ar­stjórn.

Stundin ræddi við Benedikt Jóhann­es­son um þann mögu­leika um hálf þrjú í dag.

Hver er staðan Benedikt? Er eitt­hvað að frétta?

„Ég hef ekki hug­mynd um það. Ég hef ekk­ert frétt annað en það sem ég hef lesið á vefnum.“

Þannig að Bjarni hefur ekk­ert haft sam­band?

„Ekki ennþá.“

Er rík­is­stjórn­ar­myndun með Framókn og Sjálf­stæð­is­flokknum út úr mynd­inni?

„Ekki þeim saman.“

„Ég hef haldið mig við það“

Er það alveg af og frá eins og staðan er í dag?

„Ég hef haldið mig við það en jafn­framt skal það ítrekað að ég hef ekki úti­lokað neinn ein­stakan stjórn­mála­flokk en hef úti­lokað að ganga inn í núver­andi rík­is­stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár