Myndbönd: Flóttamannavinir umkringdu þjóðernissinna

Tugir þjóð­ern­is­sinna söfn­uð­ust saman á Aust­ur­velli og mót­mæltu mót­töku flótta­fólks. Margfalt fleiri mættu þó á annan kröfufund, á sama tíma og sama stað, sem hald­inn var til stuðn­ings flótta­mönnum, múslimum og fjöl­menn­ingu.

Myndbönd: Flóttamannavinir umkringdu þjóðernissinna
Geiri / Pressphotos.biz Mynd: Pressphotos.biz

Nokkur tog­streita ríkti á Aust­ur­velli í dag þegar tveir hópar með and­stæð sjón­ar­mið blésu til mót­mæla.

Annars vegar kom saman fólk úr Íslensku Þjóð­fylk­ing­unni, nýstofn­uðum stjórn­mála­flokki sem beitir sér gegn fjöl­menn­ingu og vill tak­marka komu inn­flytj­enda til Íslands í enn meira mæli en gert er nú þegar. Sá hópur boð­aði til mót­mæla gegn nýju útlend­inga­lög­unum og krafð­ist þess að engin moska yrði reist á Íslandi. 

Mun fleiri til­heyra þó hinum hópnum sem fjöl­mennti á Aust­ur­völl til að sýna múslimum, flótta­fólki og fjöl­menn­ingu stuðn­ing. Gerði fólk hróp hvert að öðru, ekki síst eftir að hóp­ur­inn sem er vin­veittur flótta­fólki mynd­aði hring í kringum Aust­ur­völl.

Tveir úr hópi fólks­ins sem mót­mælti Þjóð­fylk­ing­unni tóku skilti af þjóð­ern­is­sinna, hlupu með það afsíðis og brutu. Eigandi skilt­is­ins og fleiri veittu þeim eft­ir­för og kom til snarpra orða­skipta.

Þegar blaða­menn Stund­ar­innar svip­uð­ust um á Aust­ur­velli um hálf­fjög­ur­leytið var aðeins einn lög­reglu­þjónn sjá­an­legur. Fleiri höfðu þó sendir þangað á fimmta tím­anum. 

Lögreglan
Lög­reglan var fámenn á svæð­inu þrátt fyrir mik­inn hita og átök á milli hópanna.

Eftir að hóp­ur­inn sem mót­mælti Þjóð­fylk­ing­unni hafði sungið „Velkomið flótta­fólk“ í nokkrar mín­útur snéru með­limir þjóð­fylk­ing­ar­innar út úr orð­unum og sungu „Velkomið okkar fólk.“

Hring­ur­inn utan um Þjóð­fylk­ing­una hélt áfram að syngja, meðal ann­ars: „Minni for­dóma, meiri ást:“

Þjóð­fylk­ing­ar­fólk sneri því á haus og söng: „Engir for­dómar, lesið lögin.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár