Kærður fyrir morðhótun af Litla-Hrauni: „Ég er svo mikill pabbastrákur að ég hugsa mig ekki tvisvar um 16 ára dóm.“

Stundin hefur kæruna undir höndum sem og skjáskot af skila­boðunum. Hinn kærði, Sævar Örn Hilmarsson, er sonur Hilmars Leifs­sonar. Málið tengist deilum sem náðu hápunkti fyrir utan Laugar síðasta sumar.

Skjáskot úr myndband
Skjáskot úr mynd­band Sævar Örn er sonur Hilmars Leifs­sonar sem réðst á karl­mann­inn fyrir utan Laugar síð­asta sumar. Mynd: Youtube

Sævar Örn Hilmarsson var kærður fyrir að hóta manni á meðan hann sat í fangelsi. Stundin hefur kæruna undir höndum, en þar kemur fram að skila­boðin bárust í gegnum Facebook í mars og apríl í fyrra. Á þeim tíma var Sævar Örn að afplána dóm á Litla Hrauni, en hann var meðal annars dæmdur fyrir líkams­árás með hafnabolta­kylfu.

Maðurinn sem kærði málið er á fertugsaldri. Hann hefur átt í deilum við Hilmar Leifsson, sem er faðir Sævars Arnar. Lentu þeir meðal annars í átökum fyrir utan Laugar síðasta sumar.

„Ég fokkkking slatra þér“

Stundin hefur einnig undir höndum afrit af skila­boðunum sem voru kærð til lögreglu. Í fyrri skila­boðunum segir: „Þú er nú meiri fokkkking ræfillinn sökkerpunsar 60 kall og hleypur í burtu eins og fokkking hræ í öðrum skónum þettaa er fokkking pabbi ég skal fokkking slatra þer fríkið þótt ég þurfi að eyða restinni af æviinnni herna innni ég fokkkking slatra þér fokkkking kryppplingurinn þiinnn það er fokkking loforð.“

Þegar talað er um „sökkerpuns“ er væntanlega verið að vísa í atvik sem átti sér stað á Kaffi Mílanó í fyrra, þar sem slagsmál brutust út á milli þess sem nú kærði og Hilmars.

Í seinni skila­boðunum er maðurinn varaður við aðgerðum gegn Hilmari: „Þú reðst a pabba minn af engri helvitis astæðu ef þið eruð að plana eh gegn pabba minum drep eg ykkur alla og þig fyrst ekki vera svona heimskur af engri astæðu nóg að okkur lenti saman en þetta er komið gott hvað a pabbi minn sem er 60 að nenna að þurfa standa í svona kjæftæði hann er með fjöl­skyldu en eg lofa þer því [...] eg er svo mikill pabba strakur að eg hugsa mig ekki tvisar um 16 ara dom fyrir hann svo þú vitir það bara látttu þetta kjurt ligggja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár