Forsætisráðherra um tengsl við DV: „Hann ætlar ekkert að tjá sig um málið“

Sig­mundur Davíð sagður hafa komið að fjár­mögnun á hlut Björns Inga Hrafns­sonar í DV. Aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra segir málið í höndum lög­reglu.

Forsætisráðherra um tengsl við DV: „Hann ætlar ekkert að tjá sig um málið“
Tjáir sig ekki Jóhannes Þór Skúlason og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Pressphotos.biz

„Hann ætlar ekk­ert að tjá sig um málið. Ekkert frekar en í morgun. Hann hefur ekk­ert gefið mér upp að hann ætli að tjá sig um málið enn sem komið er,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, í sam­tali við Stundina. Blaða­maður hafði sam­band við aðstoð­ar­mann­inn og bað um við­brögð for­sæt­is­ráð­herra við fréttum um að hann hefði komið að fjár­mögnun á hlut Björns Inga Hrafns­sonar í DV. 

Ætlar hann ekki einu sinni að neita fyrir þessar fréttir? „Ég spurði hann fyrir rík­is­stjórn­ar­fund í morgun hvort hann ætl­aði eitt­hvað að tjá sig um þetta þegar þetta var nýkomið í fréttir. Ég hef í raun­inni ekk­ert rætt um þetta við hann síðan þá og þá vildi hann ekki tjá sig um málið. Ég mun bara láta vita ef það breyt­ist.“

Það er verið að halda því fram að hann hafi lánað Birni Inga pen­ing til þess að kaupa DV. Er það rétt? „Ég hef bara ekk­ert meira um málið að segja. Ráðu­neytið tjáir sig ekki um örygg­is­mál ráð­herra.“

Nú er ég að spyrja um eitt­hvað annað en örygg­is­mál? „Þetta er eina svarið sem þú færð frá mér um þetta mál í augna­blik­inu. Þetta er í höndum lög­regl­unnar ennþá og varðar örygg­is­mál gagn­vart ráðu­neyt­inu. Á meðan það er í þeim far­vegi þá tjái ég mig ekk­ert að öðru leyti um málið.“

Neitaði að tjá sig um fjármögnun

Björn Ingi var spurður af Kjarn­anum í lok síð­ast­lið­ins nóv­em­ber­mán­aðar hvernig kaupin á DV voru fjár­mögnuð. Hann neit­aði þá að tjá sig um bæði kaup­verð og fjár­mögnun. „Kaup­verðið er trún­að­ar­mál. Og sömu­leiðis hvernig þau eru fjár­mögnuð, en þetta er sam­vinnu­verk­efni með þeim sem áttu blaðið,“ var haft eftir Birni Inga í frétt Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár