Illa búnir bílar á ferð um fjallvegi

Sjö umferð­ar­ó­höpp til­kynnt til lög­regl­unnar á Blöndu­ósi í dag. Lög­reglu­þjónn segir bíla ekki nógu vel búna.

Illa búnir bílar á ferð um fjallvegi

„Sjö umferð­ar­ó­höpp hafa verið til­kynnt til okkar í dag,“ segir Hösk­uldur Erlings­son lög­reglu­þjónn á Blöndu­ósi í sam­tali við Stundina. Þrír bílar hafi farið út af veg­inum sunnan við Víðihlíð en þar hafi verið mikil hálka. Þrír far­þegar eins bíls­ins voru fluttir með sjúkra­bílum á sjúkra­húsið á Akureyri. Ekki er vitað um meiðsl þeirra en að sögn Hösk­uldar eru þau ekki talin alvar­leg. Á svip­uðum slóðum hafi einnig orðið mjög harður árekstur, afta­ná­keyrsla þar sem tveir bílar skemmd­ust mjög mikið. Farþegar bíl­anna sluppu þó ómeiddir. Þá varð einnig bíl­velta á Holta­vörðu­heiði og harður árekstur á Blöndu­ósi. 

Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að fjöldi umferð­ar­ó­happa hafi orðið vegna hálku á Norð­ur­landi í dag. Hösk­uldur segir að óhöppin megi að hluta til rekja til mik­illar hálku á svæð­inu en öku­menn megi líka spyrja sig hvort þeir hafi verið að aka eftir aðstæðum. Þá segir hann marga bíla illa búna fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár