Halldór Ásgrímsson fallinn frá

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins lát­inn, 67 ára að aldri.

Halldór Ásgrímsson fallinn frá

Halldór Ásgríms­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í gær­kvöldi, 67 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá þessu í morgun. Halldór fékk hjarta­á­fall aðfara­nótt laug­ar­dags er hann var staddur í sum­ar­bú­stað sínum við Álfta­vatn og var fluttur með sjúkra­bíl til Reykja­víkur. Hann lá þungt hald­inn á gjör­gæslu­deild þar til í gær­kvöldi er hann lést. 

Halldór lætur eftir sig eig­in­konu, Sig­ur­jónu Sig­urð­ar­dóttur og þrjár dætur, þær Helgu, Guðrúnu Lind og Írisi Huld, auk barna­barna og barna­barna­barna.

Innleiddi kvótakerfi í sjávarútvegi

Halldór fædd­ist á Vopna­firði árið 1947. Hann lauk Sam­vinnu­skóla­prófi árið 1965 og útskrif­að­ist sem lög­giltur end­ur­skoð­andi árið 1970. Þá fór hann í fram­hald­nám við versl­un­ar­há­skól­ana í Björgvin og Kaup­manna­höfn á árunum 1971 til 1973. Við heim­komu var hann síðan ráð­inn lektor við við­skipta­deild Háskóla Íslands en þeirri stöðu gegndi hann í tvö ár, eða til árs­ins 1975. 

Halldór var fyrst kjör­inn á þing árið 1974. Árið 1980 var hann kjör­inn vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og 1983 var hann síðan skip­aður sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Eitt af hans fyrstu þing­málum sem ráð­herra var að inn­leiða kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi en frum­varpið var sam­þykkt árið 1984. 

Árið 1994 varð Halldór for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og að loknum þing­kosn­ingum árið 1995 mynd­aði flokk­ur­inn rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum undir for­ystu Davíðs Odds­sonar. Halldór gegndi emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra í stjórn­inni en sam­starf flokk­anna ent­ist til árs­ins 2007. Halldór tók við af Davíð Oddssyni sem for­sæt­is­ráð­herra þann 15. sept­em­ber 2004 og gegndi því emb­ætti í tvö ár.

Sagði af sér í kjölfar slæms gengis flokksins 

Halldór lét af þing­mennsku og for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum að loknu flokks­þingi í ágúst 2006. Það gerði hann í kjöl­far slæms gengis Fram­sókn­ar­flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en þá hafði hann setið í 31 ár á þing. Halldór gegndi ráð­herra­emb­ætti nær sam­fellt í tvo ára­tugi, rúm 19 ár, og hefur aðeins Bjarni Bene­dikts­son gegnt lengur ráð­herra­emb­ætti í stjórn­mála­sögu lands­ins. 

Árið 2007 tók Halldór við sem fram­kvæmda­stjóri Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar og sinnti hann því emb­ætti til árs­ins 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár