Gerandi gengur laus í langflestum tilkynntum barnaníðsmálum

Séu tölur um til­kynnt kyn­ferð­is­brota­mál gegn börnum bornar saman við sak­fell­ing­ar­hlut­fall rík­is­sak­sókn­ara er ljóst að með­al­tali er aðeins sak­fellt í fimmt­ung slíkra mála.

Gerandi gengur laus í langflestum tilkynntum barnaníðsmálum

Ljóst er, séu tölur um til­kynnt kyn­ferð­is­brota­mál gegn börnum í árs­skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra bornar saman við tölur rík­is­sak­sókn­ara í sama mála­flokki, að lang­fæst slík mál enda með dómi. Að með­al­tali er aðeins sak­fellt í ríf­lega tutt­ugu pró­sent slíkra mála á Íslandi. Með­fylgj­andi tölur voru fengnar með því að bera saman afbrota­töl­fræði rík­is­lög­reglu­stjóra á árunum 2001 til 2011 við árs­skýrslu rík­is­sak­sókn­ara á sama tíma­bili. Um er að ræða mál er varða við 200. til 202. og 204. greinar almennra hegn­ing­ar­laga, sem fjalla á einn eða annan hátt um kyn­ferð­is­brot gegn börnum. Barnaklám­s­mál eru ekki inn í þeim tölum.

Mál Hildar Bjarkar Mar­grét­ar­dóttur er aðeins eitt af fjöl­mörgum slíkum málum en hún sagði sögu sína í við­tali við Stundina á dög­unum. Brotið var á henni í æsku en meintur ger­andi hennar gengur laus. Hún kærði málið aðeins 17 ára en málið var látið falla niður þar sem um var að ræða orð gegn orði.

Nokkra varnagla þarf að setja við töl­urnar. Árið 2007 var sam­ræð­is­aldur hækk­aður úr 14 ára í 15 ára. Það kann að skýra að hluta auk­inn fjölda til­kynntra mála á árunum eftir það. Sifja­spells­mál eru talin með í þessum tölum en í slíkum málum er sam­ræð­is­aldur hærri. Miðað er við 16 ára aldur hafi for­eldri kyn­ferð­is­mök við barn sitt. Þá er miðað við 18 ára aldur ef þeim sem fremur brotið „hefur verið trúað fyrir kennslu eða upp­eldi“ fórn­ar­lambs. Einnig er miðað við 18 ára aldur hafi ger­andi tælt þol­anda með blekk­ingum eða gjöfum. Því er ljóst að þolendur í mál­unum geta hafa verið mjög mis­gamlir þegar brotin áttu sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár