Huldumaður forðaði Hannesi Hólmsteini frá fangelsi

Forsvars­menn frjálsrar útvarps­stöðvar voru dæmdir til sektar eða fangelsis­vistar til vara. Hannes Hólmsteinn Gissurarson ætlaði í fangelsi.

Dæmdur
Dæmdur Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son ætl­aði að fara í fang­elsi fremur en að borga sekt.

Áður en útvarps­rekstur var gefinn frjáls í landinu urðu hörkuátök þegar þeir Kjartan Gunnarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Eiríkur Ingólfsson, stóðu að rekstri útvarps­stöðvar undir merki Frjáls útvarps. Þetta gerðist á níunda áratugnum í verkfalli BSRB þegar Ríkis­útvarpið var lamað og engar útsendingar þar. Aðstand­endur útvarps­stöðvarinnar voru allir talsmenn frelsis og hugsjóna­menn á því sviði og brautryðjendur á þessu sviði. Þeir héldu stöðinni úti um tíma en afleiðingarnar urðu þær að aðstandendurnir voru ákærðir fyrir lögbrot og loks dæmdir til greiðslu 20 þúsund króna sektar eða fangelsis í 15 daga að öðrum kosti.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár