Gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir skort á samráði: Samráðsnefnd ekki með í ráðum

Katrín Jakobs­dóttir gagnrýnir stjórnar­meirihlutann fyrir skort á samráði við gerð aflands­krónu­frumvarps Bjarna Benedikts­sonar. Hún segir ólíklegt að gjaldeyris­höft verði afnumin fyrir kosningar í haust. „Staðreyndin er sú að frum­varpið mun ekki aflétta höftum af íslenskum almenningi, fyrir­tækjum og lífeyris­sjóðum og enn liggur ekki fyrir hvenær það verður gert.“

Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Pírata sátu hjá þegar greidd voru atkvæði með aflands­krónu­frumvarpi Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra á Alþingi í gærkvöldi. Í nefndar­áliti minni­hluta efnahags- og viðskipta­nefndar, undir­rituðu af Katrínu Jakbosdóttur formanni Vinstri grænna, er meirihlutinn meðal annars gagn­rýndur fyrir skort á samráði í málinu. Samráðs­nefnd um losun hafta, þar sem allir stjórn­málaflokkar eiga fulltrúa, hafi ekki verið höfð með í ráðum um gerð frum­varpsins. „Það einkennir því þessa aðgerð, eins og aðrar aðgerðir núverandi ríkis­stjórnar í hafta­losunar­málum, að samráð hefur verið lítið sem ekkert og stjórnar­andstöðunni hefur verið stillt upp frammi fyrir orðnum hlut þegar kemur að því að taka afstöðu í stórum og mikil­vægum málum á borð við þetta frumvarp sem snýst um meðferð svokallaðra aflands­krónu­eigna sem nema um 319 milljörðum kr., eða 15% af vergri lands­framleiðslu,“ segir meðal annars í nefndar­álitinu. 

Þá segir að skortur á samráði í þessum málum allt kjör­tímabilið sé óviðunandi, enda mikilvægt að góð pólitísk samstaða sé um svo stór 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár