Fyrrverandi ritstjóri vill milljón vegna fréttar um kvartanir undirmanna hans

Haukur S. Magn­ús­son, frá­far­andi rit­stjóri Reykja­vík Grapevine, hefur fengið Vilhjálm Vil­hjálms­son meið­yrða­lög­fræð­ing í sína þjón­ustu. Haukur krefst þess að fá greidda milljón frá blaða­manni Stund­ar­innar vegna fréttar um að þrír starfs­menn hefðu kvartað undan honum.

Fyrrverandi ritstjóri vill milljón vegna fréttar um kvartanir undirmanna hans

Frá­far­andi rit­stjóri The Reykja­vík Grapevine, Haukur S. Magn­ús­son, sem hætti störfum í kjöl­far þess að þrír kven­kyns lær­lingar blaðs­ins sendu útgef­and­anum bréf og kvört­uðu yfir sam­skiptum við hann, krefst milljón króna frá blaða­manni Stund­ar­innar fyrir að skrifa frétt um málið.

„Loksins tekist að segja upp“

Áslaug Karen Jóhannsdóttir
Áslaug Karen Jóhanns­dóttir Blaða­maður Stund­ar­innar er kraf­inn um að greiða frá­far­andi rit­stjóra The Reykja­vík Grapevine vegna þess að greint var frá umkvört­unum und­ir­manna hans vegna sam­skipta við hann.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður hefur sent kröfu­bréf fyrir hönd Hauks, sem stílað er á Áslaugu Karen Jóhanns­dóttur, blaða­mann Stund­ar­innar. Þar er þess meðal ann­ars kraf­ist að hún greiði Hauki eina milljón króna í miska­bætur fyrir að „meiða æru“ hans.

Í frétt Stund­ar­innar var greint frá aðdrag­and­anum að brott­hvarfi Hauks úr rit­stjóra­stóli. Í síð­asta leið­ara sínum kvaðst Haukur hafa reynt lengi að hætta, en nú hefði honum „loks­ins tek­ist að segja upp, eftir nokkrar mis­heppn­aðar til­raunir.“

Lærlingar senda kvörtunarbréf til útgefanda

Þrír fyrr­ver­andi starfs­menn blaðs­ins höfðu hins vegar kvartað til útgef­anda blaðs­ins fyrir upp­sögn­ina undan end­ur­teknum kyn­ferð­is­legum athuga­semdum rit­stjór­ans í sinn garð. Starfs­menn­irnir til­kynntu Hilmari Steini Grét­ars­syni útgef­anda og Jóni Trausta Sig­urð­ar­syni, nú rit­stjóra, um sam­skiptin, meðal ann­ars bréfleiðis. 

Sjálfur neit­aði Haukur alfarið að óeðli­leg sam­skipti hefðu átt sér stað þegar Stundin bar málið undir hann. „Ég vísa þessum ásök­unum öllum ein­dregið á bug, enda eiga þær sér enga stoð í raun­veru­leik­anum.“

Ummælin sem Vil­hjálmur vill fá hnekkt fyrir dómi eru:

1. „Í öðru þeirra lýsir fyrr­ver­andi sam­starfs­kona Hauks ... alvar­legu atviki. Hún tekur einnig fram að hún hafi verið 0furölvi þegar atvikið átti sér stað. „Í grund­vall­ar­at­riðum hélt hann áfram að snerta mig og huns­aði mig þegar ég sagði honum að þetta ætti ekki að ger­ast og að mér liði illa. Hann hlust­aði ekki á mig.“

2. Þegar hún hafði áttað sig á því að um óeðli­leg sam­skipti hafi verið að ræða hafi verið orðið of seint að kæra ...

Ummælin eru fengin úr bréfi lær­lings The Reykja­vík Grapevine til útgef­anda blaðs­ins. Við­kom­andi lær­lingur kaus að hætta alfarið störfum fyrir Grapevine eftir sam­skipti við rit­stjór­ann og atvik sem átti sér stað.

Bréf Vilhjálms
Bréf Vil­hjálms Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður hefur sent bréf fyrir hönd fyrr­ver­andi rit­stjóra The Reykja­vík Grapevine og farið fram á milljón króna frá blaða­manni Stund­ar­innar.

„Þú biðjist afsökunar“

Leitaði til Vilhjálms
Leitaði til Vil­hjálms Haukur leit­aði til lög­manns vegna fréttar þar sem greint var frá því að lær­lingar hefðu kvartað undan fram­göngu hans. Vil­hjálmur hefur sér­hæft sig í meið­yrða­mál gegn blaða­mönnum.

Í bréfi Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar lög­manns er gef­inn frestur til föstu­dags með að biðja Hauk afsök­unar og greiða honum millj­ón­ina:

„Með ofan­greindum ummælum er umbjóð­anda mínum gefið að sök alvar­legt kyn­ferð­is­brot sem átti sér aldrei stað. Ummælin fela í sér ásökun um refsi­verða hátt­semi og eru til þess fallin að meiða æru umbjóð­anda míns. Þess er kraf­ist að þú biðj­ist afsök­unar á ummæl­unum, dragir þau til baka og við­ur­kennir að þau séu röng. Þess er kraf­ist að afsök­un­ar­beiðnin verði birt á áber­andi stað í næsta tölu­blaði Stund­ar­innar og á www.stundin.is. Þá er þess kraf­ist að þú greiðir umbjóð­anda mínum krónur 1.000.000 í miska­bætur.“

Athugasemd ritstj. 

Frétt Stund­ar­innar sneri að umkvört­unum þriggja kven­kyns lær­linga Reykja­vík Grapevine, sem greindu útgef­anda blaðs­ins frá óeðli­legri fram­komu rit­stjóra í þeirra garð. Stundin hefur undir höndum sann­anir fyrir kyn­ferð­is­legum athuga­semdum, sem og tvö kvört­un­ar­bréf. Rit­stjóri ber ábyrgð á því sem yfir­maður að gæta að eigin fram­komu gagn­vart starfs­fólki, með þeim hætti að þeir upp­lifi ekki að brotið sé gegn þeim í sam­skiptum. Sú stað­reynd að þrír fyrr­ver­andi und­ir­menn rit­stjóra hafi upp­lifað kyn­ferð­is­lega áreitni, og geta vísað í gögn til vitnis um það, ætti að vera nóg til að fá rit­stjór­ann til að íhuga að biðj­ast sjálfur afsök­unar fremur en að krefj­ast afsök­un­ar­beiðni sjálfum sér til handa. Stundin og blaða­maður Stund­ar­innar hafna kröfu um að greiða Hauki milljón króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár