Félag Kristins gjaldþrota

Umtals­verðar lánveitingar meðan eigin­konan var þing­forseti

Eignarhalds­félagið MCT ehf í eigu Kristins Björns­sonar, fyrrum forstjóra Skeljungs, hefur verið tekið til gjaldþrota­skipta. Áður hét félagið Mercatura ehf, en DV greindi frá því árið 2011 að félagið væri með tugi milljóna inni á reikningi í Lúxemborg.

Fyrir­tækið kom við sögu í umfjöllun rann­sóknar­nefndar Alþingis um lánveitingar til stjórn­málamanna og maka þeirra, enda er Kristinn eigin­maður Sólveigar Péturs­dóttur fyrr­verandi dómsmála­ráðherra og forseta Alþingis.

„Helstu verðbréf sem lágu að baki þeim samningum voru hlutabréf FL Group hf., Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf. og skulda­bréf Icebank. Í stærstu lánum og fram­virkum samningum Kristins og Mercatura var Glitnir mótaðili,“ segir í frétt Viðskipta­blaðsins frá 2010. Tilkynnt er um gjaldþrot félagsins í Lögbirtingar­blaðinu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lán fyrir hrun

ViðtalUppgjörið við uppgjörið

Ráðgáta af hverju Ísland var óviðbúið hruni

Svein Harald Øygard, norski hagfræð­ing­urinn sem kallaður var til í Seðla­banka Íslands til að leysa af Davíð Oddsson árið 2009, segir að allir alþjóð­legir aðilar hafi séð í hvað stefndi fyrir hrun. „Ástarbréf“ Seðla­bankans hafi valdið mestu tapi og bankarnir hafi verið ósjálfbærir frá 2007. Hann lýsir deilum við starfs­menn AGS og hvernig „gjaldþrota­leið“ Framsóknar­flokksins hafi tafið fyrir afnámi hafta. Hann gefur út bók um hrunið með viðtölum við fjölda erlendra og innlendra aðila.

16 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár