Facebook lokar reikningum palestínskra blaðamanna

Alls hafa nú sjö blaða­menn og rit­stjórar frá Palest­ínu til­kynnt að Facebook hafi lokað reikn­ingum þeirra.

Facebook lokar reikningum palestínskra blaðamanna
Átökin á Vest­ur­bakk­anum eiga sér nú einnig stað í raf­heimum

Facebook reikn­ingum blaða­manna og rit­stjóra tveggja palest­ínskra frétta­stofna hefur verið lokað í kjöl­far sam­komu­lags milli Facebook og Ísra­el­skra stjórn­valda.

Fjórir rit­stjórar Shebab News Agency, frétta­stofu á Vest­ur­bakk­anum, sem er með 6,3 millj­ónir fylgj­enda á Facebook, og þrír blaða­menn Quds News Network, sem er með 5,1 milljón fylgj­endur, sögðu frá því í síð­ustu viku að per­sónu­legum reikn­ingum þeirra á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook hefðir verið lokað. Báðar frétta­veit­urnar fjalla mest um helstu atburði á land­svæðum Palest­ínu og Ísraels, en taka þó einnig fyrir önnur mál.

Nisreen al-Khatib, túlkur og blaða­maður hjá Quds, sagði í sam­tali við Al Jazeera að frétta­stofan teldi lok­an­irnar afleið­ingu fundar milli full­trúa Facebook og ísra­el­skra stjórn­valda fyrr í mán­uð­inum þar sem rætt var hvernig hægt væri að koma í veg fyrir að sam­fé­lags­mið­ilin væri hægt að nota til þess að hvetja til ofbeldis.  

Mark Zuckerberg
Mark Zuckerberg eig­andi Facebook, er fæddur og upp­al­inn í Gyð­ing­dóm og hefur ítrekað sagst styðja mál­stað Ísra­els­ríkis.

Stjórn­völd í Ísrael eru með lög­gjöf í smíðum sem neyða fyr­ir­tækið til þess að eyða ákveðnum færslum sem þau segja að kyndi undir árásir Palest­ínu­fólks á ísra­elska borg­ara.

Ráðherra inn­an­rík­is­mála, Gilad Erdan, sagði að fund­ur­inn hefði verið mjög vel heppn­aður. Facebook hefði sam­þykkt að vinna með stjórn­völdum að því að „fylgj­ast með og fjar­lægja eld­fim inn­legg,“ en engar frek­ari skýr­ingar á útfærslum var þó að fá.  

Í það minnsta 150 palest­ínu­búar hafa verið hand­teknir síð­ustu mán­uði vegna „óláta“ á sam­fé­lags­miðlum, sam­kvæmt upp­lýs­inga­miðl­un­inni PIC [e. Palestine Information Centre]. Þeirra á meðal eru óbreyttir borg­arar og blaða­menn sem hafa verið gagn­rýnir á aðgerðir ísra­el­skra stjórn­valda, en hafa þó ekki hvatt til ofbeldis.

PIC hvetja nú til þess að not­endur Facebook snið­gangi mið­il­inn í mót­mæla­skyni fyrir að starfa svo náið með Ísra­elskum stjórn­völdum.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár