„Engin ástæða fyrir þig eða aðra að gera það meira tortryggilegt“

Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, telur eðli­legt að hann fjalli um mál­efni Arion banka á Alþingi þótt eig­in­kona hans sé fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar hjá bank­anum.

„Engin ástæða fyrir þig eða aðra að gera það meira tortryggilegt“

Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, telur að störf eig­in­konu sinnar sem fram­kvæmda­stjóra eigna­stýr­ingar Arion banka geri hann ekki van­hæfan til að fjalla um mál­efni bank­ans á vett­vangi þings­ins. Þá segir hann mik­il­vægt að „byggja upp traust og trúnað í íslensku fjár­mála­kerfi“. 

Þetta kom fram í við­tali við Óla Björn í Viku­lok­unum á Rás 1 um helg­ina, en Stundin greindi frá hags­muna­tengslum þing­manns­ins á föstu­dag. Ekki náð­ist í Óla Björn þegar Stundin fjall­aði um málið, en sam­kvæmt siða­reglum þing­manna ber þeim að „forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða ann­arra per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar“.

Óli Björn hefur ítrekað tjáð sig um mál­efni Arion banka og lýst þeirri skoðun sinni að kaup vog­un­ar­sjóða á þriðj­ungs­hlut í bank­anum séu af hinu góða. Þá hefur hann varið það að bank­inn sé kom­inn í ógegn­sætt eign­ar­hald í gegnum skatta­skjól og bent á að það sé „í sjálfu sér ekki ólög­legt að tengj­ast Cayman-eyjum“. 

Óli Björn var spurður um málið í Viku­lok­unum á laug­ar­dag. „Hún er fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar Arion­banka, já, og hefur verið það í nokkur ár. Það hefur öllum verið ljóst eða mátt vera ljóst. Það er ekk­ert leynd­ar­mál í því,“ sagði hann.

„Það gerir mig ekk­ert van­hæfan að fjalla um mál­efni íslensks fjár­mála­mark­aðar eða það sem hefur gerst í Arion banka. Eig­in­kona mín er ekki hlut­hafi með neinum slíkum hætti og það eru auð­vitað mýmörg dæmi eins og þú þekkir sjálfur, Helgi, að þing­menn hafa verið að fjalla um mál sem eru kannski tengd þeim. Ég meina, læknar hafa sest inn á Alþingi tíma­bundið og fjallað um mál sem tengj­ast þeim með beinum hætti. Menn hafa verið ráð­herrar í mála­flokkum þar sem að makar þeirra eru starf­andi undir.“

Eins og fram kom í frétt Stund­ar­innar átti Óli Björn í sam­skiptum við Höskuld H. Ólafsson, banka­stjóra Arion banka, og bauð honum á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar vegna söl­unnar á hlut í bank­anum. Eig­in­kona Óla Björns, Margrét Sveins­dóttir, er und­ir­maður Hösk­uldar og einn af æðstu stjórn­endum Arion banka. 

Aðspurður hvort hann hefði leitað sér álits á því hvort aðkoma hans að umfjöllun um mál­efni Arion banka væri eðli­leg sagð­ist Óli Björn hafa ráð­fært sig við vini sína sem setið hafa á þingi. „Ég leit­aði álits félaga minna sem eru lög­lærðir og hafa langa þing­reynslu. Það liggur alveg fyrir og ég hygg að þú getir nú leitað bara til skrif­stofu Alþingis og fengið sömu nið­ur­stöðu. Þannig að það er engin ástæða fyrir þig eða aðra að gera það meira tor­tryggi­legt en það er,“ svar­aði Óli. 

„Ég leit­aði álits félaga minna sem eru
lög­lærðir og hafa langa þing­reynslu“

Í siða­reglum Alþing­is­manna, sem sam­þykktar voru í formi þings­á­lykt­unar í fyrra, er sér­stak­lega kveðið á um að þing­menn skuli forð­ast hags­muna­á­rekstra. „Þingmenn skulu við störf sín forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða ann­arra per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar. Takist þing­manni ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá,“ segir í 8. gr. siða­regl­anna. Þá segir í 9. gr. að þeir eigi að vekja athygli á tengslum sínum. „Þingmenn skulu, þar sem við á, vekja athygli á per­sónu­legum hags­munum sínum sem máli skipta við með­ferð þing­mála.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár