Mynd: Heiða Helgadóttir

Endaði barnshafandi á geðdeild

Mál­fríður Hrund Ein­ars­dóttir, for­maður Hug­arafls, segir frá því hvernig hvert áfallið á fætur öðru varð til þess að hún missti geð­heils­una og metn­að­inn og fest­ist í hlut­verki sjúk­lings, sem átti ekki að rugga bátnum, ekki ögra sjálfum sér eða umhverf­inu, eða gera neitt sem gæti orðið til þess að hann fengi kast eða yrði leiður. Hún segir frá því hvernig henni tókst að rjúfa þennan víta­hring, finna sína styrk­leika og fara að lifa á ný.

„Mig langar til þess að biðja ykkur um að hlusta af því að við erum að fara að tala um geð­veiki. Það er erfitt að segja frá sjálfum sér og þetta er við­kvæm saga. En mig langar til að segja ykkur hana.„

Svona nær Mál­fríður Hrund Ein­ars­dóttir athygli fram­halds­skóla­nema þegar hún segir sög­una af því hvernig hún, sem ólst upp í öruggu umhverfi í Hafn­ar­firði, auga­steinn for­eldra sinna og lang­yngst sex systk­ina, sem öll héldu vernd­ar­hendi yfir henni, brotn­aði niður. Hefði allt farið eins og móðir hennar óskaði sér hefði hún aldrei lent í neinum áföllum á lífs­leið­inni. Raunin varð þó önnur og hvert áfallið hefur rekið öðru. Strax í æsku lenti hún í hremm­ingum í vin­áttu­sam­bandi sem ein­kennd­ist af ráð­ríki og ofbeldi og mót­aði allt sem á eftir kom. Hér segir hún svo frá því hvernig til­raunir hennar til þess að byrgja sárs­auk­ann inni og harka af sér varð á end­anum til þess að hún missti heils­una og end­aði á geð­deild, verð­andi móðir, örmagna á lík­ama og sál.

NIÐURBROTIÐ

Alin upp í bómull

„Ég var alin upp í bóm­ull. Það mátti ekk­ert koma fyrir mig. Ekki bara það, ég mátti ekki heldur gera mis­tök. Þannig að ég fór ekki út að prófa alls­konar hluti eins og krakkar gera. Það var frekar dregið úr mér en að ég væri hvött áfram, en það lá fal­leg hugsun að baki. Mamma hafði misst barn og ég var tekin með keis­ara því hún var svo hrædd um kæmi eitt­hvað fyrir í fæð­ingu, þannig að þetta byrj­aði strax. En það eru ofsa­lega sterk tengsl á milli okkar og hún sýndi mér alltaf mikla umhyggju, enda erum við bestu vin­konur.“

„Í þess­ari vin­áttu varð ég fyrir and­legu og lík­am­legu ofbeldi, frá því að ég var átta ára gömul og þar til ég varð fimmtán ára.“

Hún lýsir því hvað henni leið vel í þessu umhverfi, hún átti vini í göt­unni og það var gaman að vera til. En hún fór aldrei langt, ekki til dag­mömmu eða á leik­skóla og dag­inn sem hún byrj­aði í skóla vissi hún að hún þyrfti að passa sig. „Ég varð mjög passív því þetta var svo stórt og það var svo margt sem ég varð að var­ast. Ég fann aldrei fyrir til­hlökkun fyrir því að byrja í skóla en allt gekk vel þar til ég varð átta ára.“

Ný stelpa byrj­aði í skól­anum og með þeim tókst vin­átta, sem Fríða lýsir sem „fang­els­is­vist,“ þegar hún hugsar til baka. „Í þess­ari vin­áttu varð ég fyrir and­legu og lík­am­legu ofbeldi, frá því að ég var átta ára gömul og þar til ég varð fimmtán ára.“

Skaðleg vinátta

Í fyrstu skemmtu þær sér vel saman, en fljót­lega fór Fríða að missa sam­bandið við aðrar vin­konur sínar. „Hún gat verið skemmti­leg en hún var ógn­andi og ég vissi það ekki fyrr en seinna að aðrar vin­konur mínar þorðu ekki að nálg­ast okkur, svo þær hurfu úr mínu lífi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár