Segir ekki óeðlilegt að senda barn heim eftir sjálfsvígstilraun

Yfir­læknir göngu­deildar BUGL segir að það þurfi ekki að hafa verið mistök að vísa ungum hælis­leitanda frá eftir tilraun til sjálfs­vígs. Hann hafi þá líklega ekki verið metinn í bráðri sjálfsvígs­hættu en þurfi þó líklega á hjálp og stuðningi að halda. Rúmur mánuður er liðinn frá því drengurinn reyndi sjálfsvíg. Hann býr einn í félags­skap ókunnugra karlmanna og hefur nær enga sálræna aðstoð fengið.

Muhiyo Hamad
Muhiyo Hamad Hefur beðið í meira en mánuð eftir því að fá við­tal við geð­lækni, frá því hann gerði til­raun til sjálfs­vígs. Mynd: Kristinn Magnússon

Sextán ára hælis­leitanda, sem leitaði á bráða­móttöku Land­spítalans fyrir um rúmum mánuði síðan eftir að hafa reynt sjálfsvíg, var vísað frá eftir stutt samtal og sagt að koma aftur daginn eftir. Stundin birti sögu drengsins í síðasta tölublaði.

Daginn eftir að hafa reynt sjálfsvíg kom hann á BUGL og hitti geðlækni, sem gaf honum eina svefn­töflu og sagði jafnframt að hann ætti að geta fengið fleiri töflur hjá öðrum lækni. Hann hitti geðlækninn einu sinni enn en hefur síðan hvorki verið undir læknis­hendi né fengið svefn­töflur eða önnur lyf. Drengurinn á við alvarlegar svefn­truflanir að etja og hefur því ýtt á eftir því að fá aðstoð, bæði sjálfur og í gegnum talsmenn hælis­leitenda hjá Rauða krossinum. Í samtali við blaðamann Stundarinnar í dag sagðist hann nú loks hafa fengið þær upplýsingar frá starfs­mönnum Útlendinga­stofnunar að hann fái læknis­viðtal 18. október. Hann lýsir enn miklu vonleysi og segist enn stöðugt hugsa um að binda enda á líf sitt.  

Guðrún Bryndís Guðmunds­dóttir, yfir­læknir göngu­deildar BUGL, segir að það þurfi ekki að vera óeðlilegt að manneskju, sem gert hefur sjálfsvígs­tilraun, sé vísað frá samdægurs. „Nei, það þarf ekki að vera neitt óeðlilegt við það. Við erum með bráða­teymi hér á BUGL sem sinnir þjónustu við börn og unglinga í kjölfar sjálfsvígs­tilrauna eða vegna sjálfsvígs­hugsana. Teymið hittir þau annaðhvort samdægurs eða daginn eftir og metur aðstæður. Ef þörf þykir á er barna- og unglinga­geðlæknir fenginn að málinu. Stundum þarf innlögn og stundum áfram­haldandi aðkomu bráða­teymis. Stundum er niður­staðan sú að ekki er talin frekari þörf á aðstoð okkar. Þá vísum við jafnvel á úrræði annars staðar, svo sem í heilsu­gæslunni, hjá sálfræðingum á vegum Trygginga­stofnunar eða í fjölskyldu­þjónustu Rauða krossins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár