Einar Mikael afþakkaði styrkinn: „Ég varð orðlaus þegar ég kom heim“

Töfra­mað­ur­inn Einar Mikael, sem hefur gagn­rýnt lista­manna­laun harð­lega, seg­ist ekki hafa tekið við 550 þús­und króna mark­aðs­rann­sókn­ar­styrk sem honum var úthlutað í fyrra. Hann hætti við verk­efnið.

Einar Mikael afþakkaði styrkinn: „Ég varð orðlaus þegar ég kom heim“

Töfra­mað­ur­inn Einar Mikael seg­ist ekki hafa tekið á móti 550 þús­und króna mark­aðs­rann­sókn­ar­styrk sem honum var úthlutað í fyrra. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá honum. Það er þó ekki hægt að segja að hann hafi afþakkað styrk­inn af hug­sjóna­á­stæðum, hann sótti vissu­lega um styrk­inn en afþakk­aði þar sem hann hætti við verk­efnið. Einar Mikael hefur tjáð sig mikið und­an­farna daga um lista­manna­laun sem hann er mjög mót­fall­inn. Hann hefur hvatt almenn­ing til að snið­ganga rit­höf­unda ef þeir afsöl­uðu sér ekki lista­manna­launum. „Það verður að segj­ast eins og er að ég varð orð­laus þegar ég kom heim í gær og fór yfir fréttir dags­ins. Þrír íslenskir vef­miðlar höfðu birt fréttir sem sam­an­stóðu af full­yrð­ingum um mig sem ekki er fótur fyrir,“ segir Einar Mikael í yfir­lýs­ingu sinni.

Blogg­ar­inn Agnar Kr. Þor­steins­son greindi frá því í gær á vef Stund­ar­innar að Einar Mikael hafi fengið 550 þús­und kr. styrk frá Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands í fyrra til að kanna mögu­leika hans til útrásar í töfra­mennsku til Bret­lands. Þetta kemur fram á heima­síðu Nýsköp­un­ar­mið­stöðv­ar­innar. „Kannski ætti Einar Mikael að líta í eigin barm áður en hann hvetur til þess að vinna ann­ars fólks sé snið­gengin vegna þess að það sótti um styrki vegna vinnu sinnar. Það yrði alla­vega heið­ar­legra heldur en að hann reyni þá list að dreifa athygli fólks í burtu frá spurn­ingum um hvers vegna hann sé ekki sam­kvæmur sjálfum sér. Sjón­hverf­ingar töfra­m­anna virka nefni­lega ekki alltaf,“ skrif­aði Agnar í gær.

Í kjöl­far blogg­færslu Agnars birtu bæði Nútíminn og DV fréttir um styrk­veitng­una. Báðir miðlar sögðu í fréttum sínum að ítrekað hafi verið reynt að ná tali af Einari Mikael án árang­urs. Töfra­mað­ur­inn hafnar því hins vegar í yfir­lýs­ingu sinni. „Það var ekk­ert „mis­sed call“ á sím­anum mínum né heldur skila­boð frá hlut­að­eig­andi á Facebook eða tölvu­póstur. Það voru ekki gerðar til­raunir til að ná af mér tali!,“ skrifar Einar Mikael.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Listamannalaun

MenningListamannalaun

Alls hljóta 251 ein­stak­lingar lista­manna­laun á næsta ári

Listi yfir þá sem fá úthlutað lista­manna­launum fyrir árið 2025 hefur verið birtur. Í heild er um að ræða 251 ein­stak­ling og verða launin 560.000 krónur á mán­uði. Alls sóttu 1.339 um launin, þar af 1.223 ein­stak­lingar og 116 sviðs­lista­hópar. Samkvæmt vef Stjórn­ar­ráðs­ins voru 1.720 mán­að­ar­laun úr átta launa­sjóðum til úthlut­unar. Þeir sjóðir voru: Hönnuða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda, tón­skálda,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár