Ásgeir segir starfsfólki Austurs hótað - stjórnarformaður segir rödd sína sviðsetta

Ásgeir kærir Kamran fyrir hót­anir. Kamran kærir Ásgeir til Sérstaks sak­sókn­ara. Segir rödd sína svið­setta á upp­töku Ásgeirs.

Ásgeir segir starfsfólki Austurs hótað - stjórnarformaður segir rödd sína sviðsetta
Einn vin­sæl­asti skemmti­staður lands­ins Stað­ur­inn er til helm­inga í eigu Ásgeirs Kol­beins­sonar og við­skipta­fé­laga, ann­ars vegar, og Kamrans Keivanlou og við­skipta­fé­laga hans frá Íran, hins vegar.

Deilan um næt­ur­klúbb­inn Austur fer harðn­andi. Ásgeir Kol­beins­son fram­kvæmda­stjóri og full­trúi eig­enda helm­ings hluta­fjár, segir að Kamran Keivanlou, stjórn­ar­for­maður 101 Aust­ur­strætis ehf., rekstr­ar­fé­lags Austurs, hafi hótað sér og fjöl­skyldu sinni. 

Forsaga máls­ins er sú að Ásgeir hefur gripið til sinna eigin ráða eftir að Kamran og við­skipta­fé­lagi hans létu loka reikn­ingum félags­ins vegna deilu við Ásgeir og Styrmi Þór Bragason, eig­enda hins helm­ings­ins. Ásgeir hefur fengið annað einka­hluta­fé­lag til að taka við greiðslum inni á staðnum, en það heitir Aust­ur­stræti 5 ehf. Skemmti­stað­ur­inn Austur er skráður við Aust­ur­stræti 7. Þannig hefur hann náð að sneiða hjá aðgerðum stjórn­ar­for­manns og eig­enda helm­ings hluta­fjár, sem vildi láta loka staðnum, og náð að halda skemmti­staðnum gang­andi.

Einn eigenda Austurs
Einn eig­enda Austurs Styrmir Þór Bragason fer, ásamt Ásgeiri Kol­beins­syni, með helm­ing eign­ar­hlutar í 101 Aust­ur­stræti ehf, sem rekur Austur.

Segir rödd sína sviðsetta

Ásgeir hefur kært Kamran til lög­reglu fyrir hót­anir, sem hann seg­ist meðal ann­ars eiga á upp­töku.

Í sam­tali við Stundina hafnar Kamran því að hafa hótað Ásgeiri. „Fyrir meira en mán­uði síðan var ég boð­aður til lög­regl­unnar ásamt lög­manni mínum vegna stað­hæf­ingar Ásgeirs Kol­beins­sonar um að ég væri að hóta honum. Ég hafn­aði því hjá lög­reglu og útskýrði að það sem hefði verið á upp­tök­unni væri svið­sett rödd. Þetta væri ekki mín rödd. Og ég hót­aði honum aldrei,“ full­yrðir Kamran. 

Kærði Ásgeir til Sérstaks saksóknara

„Ég kærði hann til Sérstaks sak­sókn­ara. Auk þess til­kynntum við til lög­reglu að hann væri ólög­lega að láta annað fyr­ir­tæki taka við greiðslum og selja áfengi án vín­veit­inga­leyfis. Lög­reglan er að rann­saka þetta. Ég treysti lög­regl­unni og dóm­stólum til þess að kom­ast að heil­brigðri nið­ur­stöðu. Ég myndi aldrei hóta honum eftir að hafa kært hann til lög­reglu. Það var ástæðu­laust að hóta honum, við þurftum ekki að gera það vegna þess að við treystum lög­regl­unni til að klára málið.“

„Hann er að reyna að rugla fjöl­miðla, lög­regl­una, önnur yfir­völd og íslensku þjóð­ina“

„Hann er að reyna að rugla fjöl­miðla, lög­regl­una, önnur yfir­völd og íslensku þjóð­ina, vegna þess sem hann er að gera ólög­lega á staðnum: Að reka annað fyr­ir­tæki inni á staðnum og selja áfengi án vín­veit­inga­leyfis.“

Bæði leiga á hús­næði Austurs og vín­veit­inga­leyfið er skráð á félagið 101 Aust­ur­stræti, en félagið sem Ásgeir fékk til að sjá um að rukka fyrir drykki á staðnum hefur ekki leyfi til að bera. Hins vegar höfðu Ásgeir og Kamran gert samn­ing um að félag Kamrans, Alfacom, myndi kaupa allan rekstur Austurs. Aðeins helm­ingur hefur verið greiddur og útskýrir Kamran það með því að skil­yrði kaup­samn­ings hafi ekki verið upp­fyllt, meðal ann­ars hafi komið fram vill­andi upp­lýs­ingar um rekst­ur­inn fyrir sölu. 

Segir hótanir beinast að starfsfólki og fjölskyldu

Í sam­tali við Stundina seg­ist Ásgeir eiga hót­anir á upp­töku, en Kamran segir rödd­ina á upp­tök­unni vera svið­setta.

„Hann hefur oft hótað mér og starfs­fólki fyr­ir­tæk­ins líka, en þar hefur í raun bara orð staðið á móti orði. Í þetta skipið náði ég að taka þetta upp á sím­ann minn og að sjálf­sögðu kærði ég það. Ég ætla ekki að taka því þegj­andi að mér og fjöl­skyldu minni sé hótað. Hvað varðar inni­hald sam­tals­ins vil ég ekki segja neitt meira um, enda er þetta komið inn á borð lög­reglu og er von­andi í hraðri vinnslu þar, enda hefur mér aldrei áður verið hótað svona og finnst það eðli­lega ekki góð til­finn­ing,“ segir Ásgeir. 

„Það er starfs­fólk sem er á vitna­lista lög­manns okkar vegna hót­ana.“

Aðspurður seg­ist Ásgeir ekki vilja benda á vitni í mál­inu að svo stöddu, til stað­fest­ingar á hót­un­unum, þar sem hann vilji ekki setja starfs­fólk sitt í þá aðstöðu. „Það er starfs­fólk sem er á vitna­lista lög­manns okkar vegna hót­ana. Ég auð­vitað veit ekki hvort það verði kallað fyrir eða ekki, en ég verð samt að telja það lík­legt. En auð­vitað snýst þetta mál fyrst og fremst um að staðið verði við þann samn­ing sem gerður var, og því með ólík­indum að því sé ekki leyft að ná til dóm­stóla án þess að farið sé í hót­anir sem þessar. Þetta á auð­vitað bara að leysa í rétt­ar­sal og punktur. Þannig leysir sið­menntað fólk sinn ágrein­ing.“

Fyr­ir­taka í skulda­máli Ásgeirs og félaga gegn Kamran og félags hans verður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á mið­viku­dag­inn, en þar freistar Ásgeir þess að fá Kamran til að borga rest­ina af kaup­verði Austurs. Ekki er úti­lokað að fleiri mál vegna deil­unnar fari fyrir dóm, en hún hefur komið inn á borð Sýslu­manns­ins í Reykja­vík, Rík­is­lög­reglu­stjóra, Sérstaks sak­sókn­ara, Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið um næturklúbbinn Austur

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár