Sálarbylgjan skellur á

Danska söngkonan Eif kemur fram í Norræna húsinu með fjögurra manna hljómsveit í janúar. Undan­farnar vikur hefur hljóm­sveitin verið að vinna með sálar­fullan bræðing raftónlistar og hlið­rænnar tónlistar sem Eif hlakkar til að kynna fyrir Íslendingum.

Fyrir rúmlega tveimur árum var Ann-Sofie Rokbøl á leiðinni með flugi til Kanada. Á löngu fluginu fór hún að spjalla við manninn í sætinu við hliðina á henni, sem reyndist vera frá Íslandi. Það átti eftir að verða afdrifa­ríkt samtal. „Á milli þess sem við töluðum saman sváfum við á öxl hvort annars. Ég var á leiðinni til Kanada til að læra og eftir fyrstu önnina hittumst við í New York og fórum svo til Reykja­víkur saman. Þar hófst ástar­samband mitt við Ísland. Ég varð ástfangin af borginni, lista- og tónlistar­senunni, tungu­málinu og nátt­úrunni. Ég hef oft komið til Íslands síðan og það hefur verið mér mikill innblástur. Fyrst þegar ég kom hugsaði ég með mér að það yrði stórkostlegt að fara á tónleika­ferðalag til Íslands einhvern tímann. Nú er loksins að verða af því,“ segir Ann-Sofie, sem ber lista­mannsnafnið Eif. Á laugardags­kvöldi í janúar ætlar hún að halda tónleika í Norræna húsinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár