Gamla fréttin: Blaðamaður og ljósmyndari Dagblaðsins voru handtekin

Þegar Geirfinns­málið stóð sem hæst var fjölmiðlafár og gríðarleg tauga­veiklun í gangi. Þýskur lögreglu­maður, Karl Schütz, var fenginn til að koma skikk á rann­sóknina og upplýsa hvað varð um Guðmund Einarsson og Geirfinn Einarsson sem báðir hurfu sporlaust.

Sjáandinn
Sjá­and­inn Lög­reglan fékk hol­lenskan miðil til að leita að Geir­finni Ein­ars­syni.

Sumarið 1976 var um fátt annað talað á Íslandi en Geirfinns- og Guðmundar­málin. Þessi mál áttu það sameiginlegt að tveir menn, Geir­finnur Einarsson og Guðmundur Einarsson, hurfu sporlaust með nokkru millibili. Lögreglan var ráðþrota. Síðdegis­blöðin, Dagblaðið og Vísir sögðu stöðugt fréttir af framvindu málsins og þeirri ringul­reið sem ríkti. Þjóð­þekktir einstaklingar höfðu verið hand­teknir, grunaðir um að eiga aðild að hvarfi mannanna.

Sjáandi og rannsakandi

Örvænting íslenskra yfirvalda tók á sig ýmsar myndir. Hollenskur sjáandi, Gerard Croiset, var fenginn til þess að finna líkin án þess að það skilaði árangri. Þá var gripið til þess að fá þýskan lögreglu­foringja á eftir­launum, 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár