Bæjarfulltrúar þiggja 45 prósenta launahækkun vegna þess að „Alþingi hyggst ekki breyta ákvörðun kjararáðs“

Úrskurður kjara­ráðs um hækkun þing­far­ar­kaups dregur dilk á eftir sér. Bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sam­þykkti með sex atkvæðum gegn fjórum að aft­ur­kalla tíma­bundna frestun launa­breyt­inga.

Bæjarfulltrúar þiggja 45 prósenta launahækkun vegna þess að „Alþingi hyggst ekki breyta ákvörðun kjararáðs“

Bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sam­þykkti með sex atkvæðum gegn fjórum á fundi í vik­unni að aft­ur­kalla tíma­bundna frestun á launa­breyt­ingum og þiggja þannig 45 pró­senta launa­hækkun.

Þiggja þeir hækk­un­ina á þeim grund­velli að ljóst sé orðið að Alþingi ætli ekki hnekkja ákvörðun Kjara­ráðs um hækkun þing­far­ar­kaups.

Fram kemur í fund­ar­gerð bæj­ar­stjórnar að full laun fyrir störf í bæj­ar­stjórn séu í dag 199 þús­und krónur á mán­uði en vegna ákvörð­unar kjara­ráðs muni launin hækka upp í 286 þús­und krónur. 

Á fundi bæj­ar­stjórnar lögðu full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Bjartrar fram­tíðar fram svohljóð­andi bókun: 

Nú er ljóst að Alþingi mun ekki breyta ákvörðun kjara­ráðs frá 1. nóv­em­ber 2016 um hækkun á þing­far­ar­kaupi. Um ára­bil hafa kjörnir full­trúar í Hafn­ar­firði sjálfir ákvarðað laun sín en það fyr­ir­komu­lag verður að telj­ast mjög óeðli­legt og óheppi­legt. Í júní 2016 birti Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga við­mið­un­ar­launa­töflu fyrir full­trúa í sveit­ar­fé­lögum lands­ins þar sem miðað er við þing­far­ar­kaup. Í kjöl­farið ákvað bæj­ar­ráð Hafn­ar­fjarðar að launa­þróun kjör­inna full­trúa sveit­ar­fé­lags­ins skyldi tekin úr höndum þeirra sjálfra, fylgja fram­vegis þing­far­ar­kaupi og um leið verða ákvörðuð af kjara­ráði eins og víðar er gert í bæj­ar­fé­lögum. Með vísan til þess að Alþingi hyggst ekki breyta ákvörðun kjara­ráðs mun bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar nú fylgja eftir fyrri ákvörðun, að miða laun sín við þing­far­ar­kaup og þar með ákvarða ekki sjálf laun sín.

Síð­ast­liðin átta ár hafa laun kjör­inna full­trúa í Hafn­ar­firði ekki haldið í við almenna launa­þróun og dreg­ist jafnt og þétt aftur úr launa­þróun starfs­manna sveit­ar­fé­laga og munar þar núna um 45%. Full laun fyrir störf í bæj­ar­stjórn eru núna 199 þús. kr. á mán­uði. Með ákvörðun kjara­ráðs hækka launin því og verða um 286.000 kr. á mán­uði. Full laun fyrir störf í almennu ráði hjá bæj­ar­fé­lag­inu eru um 90 þús. kr. á mán­uði. Með ákvörðun kjara­ráðs verða laun fyrir setu þar nú um 129.600 kr. á mán­uði.

Bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans, Adda María Jóhanns­dóttir auk full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna, lýstu furðu yfir að ekki væri hægt að bíða eftir nið­ur­stöðum starfs­hóps um starfs­um­hverfi og kjör bæj­ar­full­trúa:

Full­trúar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna óska bókað. Þann 1. des­em­ber sl. var skip­aður starfs­hópur í bæj­ar­ráði, sem í eiga sæti full­trúar allra flokka í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Samkvæmt erind­is­bréfi er eitt meg­in­verk­efni starfs­hóps­ins að end­ur­skoða starfs­um­hverfi kjör­inna full­trúa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ og þar á meðal launa­kjör. Hópurinn á að skila nið­ur­stöðu 1. febr­úar 2017, sem er eftir tæpar 2 vikur. Bæj­ar­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna lýsa furðu yfir því að ekki sé hægt að bíða eftir nið­ur­stöðu starfs­hóps­ins.

Í ljósi fyrri athuga­semda okkar gagn­vart hækkun Kjara­dóms á þing­fara­kaupi förum við fram á að starfs­hóp­ur­inn fái að ljúka sinni vinnu og end­ur­skoðun á launum kjör­inna full­trúa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ.

Þann 29. októ­ber síð­ast­lið­inn ákvað Kjararáð að hækka laun þing­manna um 45 pró­sent eða sem nemur 338 þús­und krónum á mán­uði. Mikil umræða skap­að­ist um málið og kom upp ákall um að Alþingi myndi reyna að hnekkja úrskurði Kjara­ráðs með laga­setn­ingu. Það var ekki gert.

Haft var eftir Benedikt Jóhann­essyni, núver­andi fjár­mála­ráð­herra og þáver­andi for­manni efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, milli jóla og nýárs að ólík­legt væri að Alþingi myndi hrófla við úrskurði kjara­ráðs, enda hefði kjara­ráð þar „ein­fald­lega verið að leið­rétta alls konar inn­grip und­an­far­inna ára“. 

Eins og Stundin hefur fjallað um hafa þing­menn hækkað mun meira í launum en almennir laun­þegar á und­an­förnum árum. Árið 2013 voru laun þing­manna 630.024 krónur og hafa þau því hækkað um 74,8 pró­sent á rúm­lega þremur árum. Launa­vísi­tala, sem sýnir almenna launa­þróun, hefur hins vegar aðeins hækkað um 28,9 pró­sent á sama tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár