Átta atriði um hið fordæmalausa Marple-mál

Dómur féll nýverið á nýjan leik í hér­aðs­dómi í Marple-mál­inu svo­kall­aða. Hæsti­réttur hafði ómerkt fyrri nið­ur­stöð­una vegna van­hæfis eins af með­dóm­end­unum. Málið er ein­stakt að mörgu leyti en um sér­stak­lega alvar­legan fjár­drátt var um að ræða. Þá beitti hér­aðs­dómur í fyrsta skipti í hrun­mál­unum refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði hegn­ing­ar­laga þegar hann ákvað refs­ingu Hreiðars Más í mál­inu.

Átta atriði um hið fordæmalausa Marple-mál
Hreiðar Már Sig­urðs­son Þynging refs­ingar Hreiðars Más er for­dæma­laus í hrun­mál­unum svoköll­uðu.

Dómur féll á nýjan leik í Marple-mál­inu svo­kall­aða í byrjun mán­aðar. Hæsti­réttur hafði áður ómerkt fyrri dóm hér­aðs­dóms vegna þess að sér­fróður með­dóm­ari í mál­inu var úrskurð­aður van­hæfur. Málinu lyktaði með því að Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, fékk 12 mán­aða dóm, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, fékk 18 mán­uði og Skúli Þor­valds­son fag­fjár­festir sex mán­uði. Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var hins vegar sýknuð. 

Stundin tók saman helstu atriði máls­ins. 

1Sex milljarða millifærsla 

Í ákæru sér­staks sak­sókn­ara á hendur Hreiðari Má og Guðnýju Örnu var þeim gefið að sök að hafa skipu­lagt og fram­kvæmt fjár­drátt með því að milli­færa um sex millj­arða króna til félags­ins Marple Holding S.A. SPF. úr sjóðum Kaup­þings. Í ákærunni segir að engar lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir hafi legið að baki milli­færsl­unni. 

Þá voru þau Hreiðar Már og Guðný einnig ákærð fyrir umboðs­svik, en þau áttu að hafa mis­notað aðstöðu sína innan bank­ans með því að láta Kaupþing kaupa skulda­bréf af Marple, sem gefin voru út af bank­anum sjálfum, á nafn­virði bréf­anna að við­bættum áföllnum vöxtum. Nam kostn­að­ur­inn 57,5 millj­ónum evra og 45,4 millj­ónum dala, en sam­kvæmt ákæru var kaup­verðið „langt yfir mark­aðs­verði skulda­bréf­anna og olli Kaup­þingi hf. með því fjár­tjóni“. Eftir sat tveggja millj­arða hagn­aður vegna við­skipt­anna á reikn­ingum Marple.

Magnús Guð­munds­son var ákærður fyrir hlut­deild í brotum Guðnýjar og Hreiðar og Skúli fyrir hylm­ingu og pen­inga­þvott.

Magnús Guð­munds­sonVar dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi vegna aðkomu sinnar í Marple-mál­inu.

2Mundi ekki eftir félaginu fyrr en hann sá undirskriftir sínar 

Eign­ar­hald á Marple Holding var á meðal deilu­efna í mál­inu. Við rann­sókn máls­ins sagð­ist Skúli Þor­valds­son ekk­ert hafa munað eftir félagi með nafn­inu Marple Holding og eign­ar­hald á því hefði ekki verið borið undir hann. Þá sagð­ist hann ekki muna eftir því að hafa ritað undir neina papp­íra tengda félag­inu fyrr en honum hafi verið sýndir slíkir papp­írar.

Í skýrslu­tökum fyrir dómi rifjar Skúli upp sín fyrstu kynni af félag­inu. Hann sagði Magnús Guð­munds­son hafa beðið sig um að hjálpa bank­anum og gera þeim greiða. Fyrir greið­ann hafi Skúli fengið sölu­rétt á Kaupþing banka sem hann hafi virkjað 30. sept­em­ber 2008. Sölu­rétt­ur­inn hafi verið í eigu félags­ins SKLux og þegar pen­ing­ur­inn fyrir sölu­rétt­inn hafi ekki skilað sér inn á reikn­ing SKLux hafi Skúli spurt Magnús hvað hafi orðið um pen­ing­inn. Magnús sagði pen­ing­inn óvart hafa farið inn á Marple Holding og hafi Skúli spurt Magnús hvaða félag það væri. Magnús hafi sagt að Skúli ætti félagið og hann hafi ekki heyrt af því vegna þess að hann hefði sjálfur verið að stýra því og stjórna.

Við rann­sókn máls­ins lék vafi á þætti Skúla við mill­færsl­urnar á reikn­ing Marple Holding. Magnús hafi lýst því yfir að hann hefði alfarið tekið ákvörðun um við­skiptin fyrir hönd Marple Holding og lék þannig vafi á því að hvaða marki Skúli hafi haft vit­neskju um að ólög­mæt við­skipti eða samn­ingar hafi legið að baki milli­færsl­unum. Hér­aðs­dómur taldi Skúla hafa látið sér þessi atriði í léttu rúmi liggja og hefði honum sem eig­anda félags­ins og í ljósi upp­hæða fjár­hæð­anna, borið að krefja Magnús, Hreiðar og Guðnýju upp­lýs­inga um for­sendur að baki milli­færsl­unum. Vegna þess að hann gerði það ekki var hann tal­inn hafa sýnt af sér gáleysi og sak­felldur fyrir pen­inga­þvott.

3

Lítil sem engin gögn að baki millifærslunum

 Engin gögn um fyrri milli­færsl­una frá Kaup­þingi hf. til Kaup­þings Lux­em­borg fund­ust við rann­sókn máls­ins, fyrir utan fylgi­skjal þar sem fram kom að milli­færsla að fjár­hæð rúmum 3 millj­örðum króna hefði átt sér stað þann 19. des­em­ber 2007. Í fylgi­skjal­inu kom fram að milli­færslan hefði verið vegna val­rétt­ar­samn­ings um sölu á hluta­bréfum í Kaupþing banka en slíkur samn­ingur fannst ekki þrátt fyrir mikla rann­sókn. Hreiðar Már og Magnús héldu því fram að samn­ing­ur­inn hefði verið gerður og kvaðst Guðný hafa séð slíkan samn­ing á borði Hreiðars. Þá kom fram við rann­sókn máls­ins að fylgi­skjalið sem vís­aði til val­rétt­ar­samn­ings­ins hefði ekki verið stofnað fyrr en þann 12. jan­úar 2008 í tölvu Guðnýjar.

Að því er varðar síð­ari milli­færsl­una að fjár­hæð rúmum 3 millj­örðum sem gerð var þann 30. júní fund­ust heldur engin gögn um í bók­haldi Kaup­þings. Við rann­sókn máls­ins fund­ust hins vegar gögn um þá milli­færslu við hús­leit yfir­valda í Lúx­em­borg. Samkvæmt samn­ingnum sem fannst var Kaupþing Lux­em­borg sagður vera við­skipta­maður en fyrir aftan nafn bank­ans hafði verið hand­skrifað félagið Marple Holding. Guðný hafi vottað upp­runa­lega samn­ing­inn en hún hefði ekki verið með­vituð um að fjár­mun­unum yrði síðar ráð­stafað inn á reikn­ing Marple Holding. Vegna þess að ekki var hægt að leiða í ljós, án vafa, vit­neskju Guðnýjar um að fjár­mun­irnir myndu renna til Marple Holding var hún sýknuð.

4Lögreglan lagði hald á 5,6 milljarða króna við rannsókn málsins

Við rann­sókn máls­ins var lagt hald á sam­tals 47 millj­ónir króna evra, eða um 5,6 millj­arða króna, og var í ákærunni kraf­ist að Skúla og félögum í hans eigu yrði gert að sæta upp­töku á fjár­mun­unum með vísan til 69. greinar almennra hegn­ing­ar­laga. Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var sú að um 807 millj­ónir króna voru gerðar upp­tækar af reikn­ingi Marple Holding. Þá hafn­aði hér­aðs­dómur að gera rúmar 27 millj­ónir króna upp­tækar, sem færðar voru af reikn­ingi Marple Holding in á reikn­ing félags­ins BM Trust og bland­að­ist þannig við aðrar eignir félaga í eigu Skúla.

5Taka þurfti málið upp á ný í héraði vegna vanhæfis eins meðdómaranna

Ásgeir Brynjar TorfasonEnd­ur­flytja þurfti málið þegar í ljós kom að Ásgeir var van­hæfur til að dæma í mál­inu.

Málið var sent aftur til með­ferðar í hér­aði þegar Hæsti­réttur úrskurð­aði að Ásgeir Brynjar Torfason, sér­fróður með­dóms­maður, hefði verið van­hæfur. Ásgeir hafði talað um „banka­bófa“ í við­tali árið 2011 og var mat Hæsta­réttar að með þeim orðum hefði hann lýst afstöðu sinni til stjórn­enda íslensku bank­anna á hru­nár­unum. Þá var bent á það að Ásgeir var stjórn­ar­maður í félag­inu Gagnsæi, sam­tökum gegn spill­ingu en það hefði ekki eitt og sér getað leitt til þess að hann teld­ist van­hæfur. „Á hinn bóg­inn hef­ur með­dóms­mað­ur­inn ítrekað á sam­skipta­miðlum tekið upp fréttir af dóms­málum gegn stjórn­endum A hf. [Kaup­þing] og birt mynd meðal ann­ars af ákærðu Y [Hreiðar Már Sig­urðs­son] og Z [Magnús Guð­munds­son] við frá­sögn um sak­fell­ingu þeirra í dóms­máli. Þær til­grein­ingar verða ekki skildar á annan veg en þann, að með­dóms­mað­ur­inn lýsi yfir stuðn­ingi við það, sem fram kom í því efni sem hann tekur upp. Þá lýsir tal hans um „banka­bófa“ sem hann við­hafði á árinu 2011 afstöðu hans til stjórn­enda bank­anna, þar með talið ákærð­u,“ segir í nið­ur­stöðu Hæsta­rétt­ar. Áður hafði Símon Sig­valda­son, hér­aðs­dóm­ari og dóms­for­maður í mál­inu, kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Ásgeir teld­ist ekki van­hæfur.

Vanhæfi Ásgeirs varð til þess að nið­ur­staða úr hér­aðs­dómi dróst um meira en eitt og hálft ár. Ákæra í mál­inu var gefin út þann 26. júní 2014 og málið þing­fest 9. sept­em­ber sama ár. Þann 9. októ­ber árið eftir var dómur kveð­inn upp en með dómi Hæsta­réttar þann 23. febr­úar á þessu ári var sá dómur ómerktur ásamt með­ferð máls­ins frá upp­hafi aðal­með­ferðar og því vísað heim í hérað til úrlausnar á ný. Málið var loks dóm­tekið að nýju 13. júní og dómur kveð­inn upp þann 4. júlí.

6Héraðsdómur viðurkenndi rúmlega 8 milljarða króna skaðabótaskyldu

Í mál­inu krafð­ist Kaupþing hf. að fjór­menn­ing­arnir yrðu dæmdir til greiðslu rúmra 6 millj­arða króna í skaða­bætur, 15 millj­óna evra og 3,5 millj­óna doll­ara, ásamt vöxtum og drátt­ar­vöxtum. Hér­aðs­dómi þótti skaða­bótakrafan ekki sett fram með þeim hætti, að teknu til­liti til mót­mæla fjór­menn­ing­anna, að unnt væri að dæma um hana. Þá var kröf­unni vísað frá gegn Guðnýju enda var hún sýknuð af refsi­kröfu ákæru­valds­ins. Því féllst dóm­ur­inn á vara­kröfu Kaup­þings um við­ur­kenn­ingu á skaða­bóta­skyldu. Ekki liggur þó fyrir á þess­ari stundu hvort Kaupþing muni höfða einka­mál þar sem Hreiðar, Magnús og Skúli verða krafnir um rúma átta millj­arða króna í skaða­bætur.

7 Fordæmalaus refsing Hreiðars Más

Refsing Hreiðars Más í Marple-mál­inu á sér ekk­ert for­dæmi í hrun­mál­unum svo­nefndu, þar sem hér­aðs­dómur ákvað að þyngja refs­ingu Hreiðars umfram refsi­há­mark ákvæðis hegn­ing­ar­laga um fjár­drátt.

Al Thani-málið.Í mál­inu fengu Hreiðar og Magnús þunga fang­els­is­dóma.

Hreiðar Már var sak­felldur í Al Thani-mál­inu þann 12. febr­úar 2015 og dæmdur í 5 og hálfs árs fang­elsi. Refsiramm­inn fyrir auðg­un­ar­brot eru sex ár og fór því hér­aðs­dómur út fyrir þann ramma þegar Hreiðar var sak­felldur í Marple-mál­inu en hann var dæmdur í 12 mán­aða fang­elsi. Hefur Hreiðar þannig verið dæmdur til sex og hálfs árs fyrir auðg­un­ar­brot sín. En sam­kvæmt 2. máls­grein 77. greinar hegn­ing­ar­laga er heim­ilt að þyngja refs­ingu svo bætt sé við hana allt að helm­ingi hennar.

Í dómi hér­aðs­dóms var bent á að í fyrsta saka­mál­inu, Al Thani-mál­inu, hefðu dóm­stólar nær full­nýtt refsi­mörk auðg­un­ar­brota. Þegar Hreiðar var næst sak­felldur í hér­aðs­dómi 2015, með stað­fest­ingu í Hæsta­rétti á árinu 2016, var hann á ný sak­felldur fyrir umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun. Var þeim þá lýst þannig í dómi Hæsta­réttar að þau væru umfangs­mikil, þaul­skipu­lögð og drýgð í sam­verkn­aði og af ein­beittum ásetn­ingi. Beindust þau í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­aðnum hér á landi í heild og yrði tjónið sem leiddi af þeim beint og óbeint ekki metið til fjár. Voru brotin talin með þeim alvar­leg­ustu sem dæmi væru um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot. Vegna umfangs­mik­illa brota þótti hér­aðs­dómi rétt að þyngja refs­ingu Hreiðars.

8Hreiðar og Magnús dæmdir í þriðja sinn fyrir auðgunarbrot

Marple-dóm­ur­inn er sá þriðji sem Hreiðar Már hlýtur. Fyrsti dóm­ur­inn féll þann 12. des­em­ber 2013 þegar Hreiðar var dæmdur í 5 og hálfs árs fang­elsi í Al Thani-mál­inu fyrir mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Hæsti­réttur stað­festi refs­ing­una þann 12. febr­úar 2015. Því næst var Hreiðar dæmdur í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings og var honum gerður sex mán­aða hegn­ing­ar­auki fyrir mark­aðs­mis­notkun. Loks var Hreiðar Már dæmdur í Marple-mál­inu sem féll  síð­ast­lið­inn þriðju­dag og gert að sæta fang­els­is­refs­ingu í 12 mán­uði. Hann hefur lýst því yfir að hann muni áfrýja dómnum.

Magnús hefur komið við sögu í þeim þremur málum sem Hreiðar hefur verið dæmdur til refs­ingar. Í Al Thani-mál­inu var Magnús dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir hlut­deild í mark­aðs­mis­notkun. Þá var Magnús sak­felldur fyrir hlut­deild í mark­aðs­mis­notkun og í umboðs­svikum í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu en honum var ekki gerð refs­ing í mál­inu. Marple-málið er þriðja málið þar sem Magnús er sak­felldur en hann hlaut lengsta dóm­inn, 18 mán­aða fang­elsi. Í mál­inu var Magnús sak­felldur fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum.

Skúli, sem jafnan er kenndur við Hótel Holt, var stærsti per­sónu­legi lán­tak­andi Kaup­þings á árunum fyrir hrun en hann fékk 94 millj­arða króna lán­aða frá bank­anum miðað við gengi dags­ins í dag. Hann var dæmdur í 6 mán­aða fang­elsi í Marple-mál­inu sem er jafn­framt eina málið sem höfðað var gegn honum af sér­stökum sak­sókn­ara. Marple-málið er eina málið sem sér­stakur sak­sókn­ari höfð­aði gegn Guðnýju Örnu og var hún sýknuð af refsi­kröfu ákæru­valds­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár