1. Allt fyrir einn dag Inga lagði á sig ómælda vinnu til þess að líta sem best út á svið­inu þann 19. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Aldrei í lífinu“ í módelfitness

Ingi­björg Sölva­dóttir, 28 ára renni­smiður, ætl­aði „aldrei í líf­inu“ að taka þátt í mód­elfit­ness. En síð­ustu vikur und­ir­gekkst hún harðar æfingar, strangt matar­æði og ein­angrun til þess að stíga á svið og keppa við aðra í útliti. Stundin skyggn­ist inn í heim fit­nesskepp­anda.

„Þetta er það skemmti­leg­asta sem þið gerið, ég er að segja ykkur það,“ segir dökk­hærð kona með svart klemmu­spjald við sjö ung­lings­stúlkur sem bíða spenntar bak­sviðs eftir því að kom­ast á svið. Þær eru á aldr­inum 16 til 19 ára, ein­ungis klæddar í pínu­lítil, glitr­andi bik­iní og glæra hæla­skó og lík­lega flestar að keppa í mód­elfit­ness í fyrsta sinn. Her­bergið er þrungið bæði eft­ir­vænt­ingu og óróa, og þegar leit út fyrir að nokkrar væru að láta taug­arnar ná yfir­hönd­inni tekur reynslu­bolt­inn með klemmu­spjaldið, einn skipu­leggj­enda móts­ins, að sér að létta and­rúms­loftið. Í dag eigi þær að njóta dags­ins og fagna árangrinum sem þær hafi náð. Þær þurfi ekki að hafa áhyggjur af því hvernig þær eigi að hreyfa sig á svið­inu, þeim verði hand­stýrt af mann­inum með míkró­fón­inn. Á sama tíma og ung­linga­hóp­ur­inn bíður eftir að kom­ast á svið standa hins vegar þrettán konur á svið­inu, svo­kall­aður byrj­enda­hópur.

„Hægri snú!“ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár