Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar Íslendinga við

Hætta er á ofhitnun í íslensku efnahags­lífi ef stjórn­völd gæta ekki varúðar. Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn fagnar fækkun tekju­skattþrepa og ráðleggur Íslendingum að hækka virðis­aukaskatta. Hugsanleg úrsögn Breta úr ESB gæti skaðað útflutnings­greinar.

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn telur að stærsta hættan sem íslenska hagkerfið standi frammi fyrir sé ofhitnun í efnahags­lífinu. Ýmsir samverk­andi þættir geti valdið þessu; launa­hækkanir á vinnu­markaði hafi sitt að segja auk þess sem komandi þing­kosningar geti skapað hvata til útgjald­aukningar hjá hinu opinbera með tilheyrandi eftir­spurnar­spennu. Auk þess gæti möguleg úrsögn Bretlands úr Evrópu­sambandinu bitnað á útflutnings­greinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár