Afinn eftirlýstur vegna rannsóknar á meintu broti gegn barnabarni

Yves Francois er eft­ir­lýstur af Interpol fyrir hönd íslenskra yfir­valda eftir að hann fór úr landi í miðri rann­sókn á meintum brotum hans gegn barna­barni, sem hann kom með til Íslands í kjöl­far jarða­skjálft­ans í Haítí árið 2010.

Afinn eftirlýstur vegna rannsóknar á meintu broti gegn barnabarni
Yves Francois Eft­ir­lýstur á heima­síðu Interpol fyrir hönd Íslands. Mynd: Sigtryggur Ari / DV

Yves Francois, haí­tískur karl­maður á sjö­tugs­aldri, er eft­ir­lýstur á heima­síðu Interpol fyrir hönd Íslands. Yves er grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn barni. Mál hans og fjöl­skyldu hans röt­uðu ítrekað í fjöl­miðla í fyrra. Yves kom til Íslands árið 2012 á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar en fyrir bjó dóttir hans hér á landi.

Í frétt DV frá því í fyrra var greint frá því að Yves hafi komið til lands­ins með eig­in­konu sinni, dóttur og tveimur barna­börnum. Yves er grun­aður um að hafa brotið gegn öðru barna­barn­inu, stúlku sem er á sjötta ald­ursári nú. Samkvæmt frétta­flutn­ingi var Yves og stúlkan flótta­fólk frá Haítí sem flúði land vegna mann­skæðs jarð­skjálfta þar árið 2010. Yves fram­vís­aði skjöl við komu til Ísland um að hann væri for­sjárað­ili stúlkunnar þar sem móðir hennar hefði lát­ist í jarð­skjálft­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár