Ætlast til þess að Eygló segi sig úr ríkisstjórn

Þunga­vigt­ar­fólki í Sjálf­stæð­is­flokknum er nóg boðið vegna hjá­setu Eyglóar Harð­ar­dóttur við afgreiðslu fjár­mála­á­ætl­unar. Taldi hún að ekki væri nægi­lega hlúð að barna­fjöl­skyldum, öldruðum og öryrkjum. Áhrifa­menn í Fram­sókn­ar­flokknum koma henni til varnar.

Ætlast til þess að Eygló segi sig úr ríkisstjórn

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sat hjá við afgreiðslu fjár­mála­á­ætl­unar og fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára þegar greidd voru atkvæði um málin á Alþingi í gær.

Eygló Harðardóttir
Eygló Harð­ar­dóttir

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Óli Björn Kárason vara­þing­maður sama flokks, gera því skóna á sam­fé­lags­miðlum að rétt­ast væri að Eygló segði sig úr rík­is­stjórn. Sam­herjar Eyglóar úr Fram­sókn­ar­flokknum koma henni hins vegar til varnar.

Ástæðan sem Eygló gaf fyrir hjá­setu sinni er sú að hún telur ekki nægi­lega vel hugað að líf­eyr­is­þegum og barna­fjöl­skyldum í fjár­mála­á­ætl­un­inni.

Þetta er sams konar gagn­rýni og hefur heyrst frá þing­mönnum vinstri­flokk­anna und­an­farnar vikur. 

Í nefnd­ar­á­liti Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, er til dæmis bent á að í fjár­mála­á­ætl­un­inni er lagt upp með að barna­bætur verði ein­ungis ætl­aðar tekju­lægstu fjöl­skyldum lands­ins, sem­sagt eins konar fátækra­styrkur ólíkt því sem gengur og ger­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum. Stundin fjall­aði um þennan þátt áætl­un­ar­innar fyrr í sumar. Auk þess telur Oddný að fjár­mála­á­ætl­unin geri ekki ráð fyrir þeim fjár­munum sem nauð­syn­legir eru til að ná yfir­lýstum mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar um að bæta kjör aldr­aðra og öryrkja, né liggi fyrir hvort hús­næð­is­stuðn­ingur við leigj­endur sé að fullu fjár­magn­aður. 

Á leið úr ríkisstjórn?

Urgur er í sjálf­stæð­is­mönnum vegna fram­göngu Eyglóar. „Félags- og hús­næð­is­ráð­herra Eygló Harð­ar­dóttir gat ekki stutt fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í atkvæða­greiðslu á Alþingi í dag,“ skrifar Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir á Facebook og bætir við: „Þessi sami ráð­herra hlýtur þá að vera á leið út úr þess­ari rík­is­stjórn eða hvað?“

Óli Björn Kárason er sama sinnis og skrifar: „Ráðherra sem ákveður að styðja ekki rík­is­stjórn­ar­mál, hefur tekið ákvörðun um að afhenda for­sæt­is­ráð­herra afsagn­ar­bréf. Eygló Harð­ar­dóttir hlýtur að óska eftir fundi með for­sæt­is­ráð­herra áður en reglu­bund­inn rík­is­stjórn­ar­fundur hefst á morgun.“

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, kemur flokks­systur sinni til varnar. „Ég fagna því að Eygló Harð­ar­dóttir sé í rík­is­stjórn og ég myndi sem þing­flokks­for­maður aldrei setja það á dag­skrá að hún fari þaðan út. Hún hefur frá fyrsta degi haldið fyr­ir­vara sínum við þessa fjár­mála­á­ætlun mjög skýrt á lofti og því er þetta engin sér­stök "taktík". Ef eitt­hvað er ekki boð­legt þá er það hvernig ráð­ist er á hana af sam­starfs­fé­lögum fyrir að fylgja eigin sann­fær­ingu,“ skrifar hann. Svo tekur hann snyrti­lega undir gagn­rýni hennar á fjár­mála­á­ætl­un­ina sem hann greiddi þó sjálfur atkvæði með: „Það væri nær að þeir sem hæst hafa hlusti og velti því fyrir sér hvort ekki sé sann­leiks­korn í mál­flutn­ingi hennar um vel­ferð­ar­mál.“

Og Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sendir Ragn­heiði Rík­harðs­dóttur pillu og nýtir sér orða­til­tæki úr smiðju Vigdísar Hauks­dóttur:

Jóhannes Þór Skúlason
Jóhannes Þór Skúlason aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs

„Ekki boð­legt, segir þing­flokks­for­mað­ur­inn nú, enda sjálf alltaf verið sam­mála öllu sem rík­is­stjórnin leggur fram...eða þannig. Ein­hvern­tíma hefði þetta verið kallað að kasta grjóti úr stein­húsi... ;)“

Þá tjáir Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sig um útspil Eyglóar og segir orð hennar um hlut­skipti barna­fjöl­skyldna og líf­eyr­is­þega í fjár­mála­á­ætl­un­inni stað­festa að rík­is­stjórnin hafi svikið þá sem síst skyldi. „Bjarni hefur dyggi­lega staðið vakt­ina fyrir hina efna­mestu. En vel­ferð­ar­ráð­herr­ann ber vitni um að í höndum hans og ann­arra ráð­herra séu barna­fjöl­skyldur, aldr­aðir og öryrkjar afskipt,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár