Svartan reyk leggur yfir Hamborg: Lögregluyfirvöld kalla eftir liðsauka

Þúsundir mót­mæla fundi leið­toga G20-ríkj­anna. Búist við enn frek­ari átökum þegar líður á kvöldið.

Svartan reyk leggur yfir Hamborg: Lögregluyfirvöld kalla eftir liðsauka

Lög­reglu­yf­ir­völd í Hamborg í Þýska­landi hafa kallað eftir liðs­auka nú þegar mót­mæli í borg­inni eru að ná nýjum hæðum. Aust­ur­ríki er á meðal þeirra ríkja sem hyggj­ast senda lög­reglu­menn til borg­ar­innar. Þúsundir mót­mæl­enda voru komnir saman í Hamborg í dag til þess að mót­mæla fundi G20-ríkj­anna. Komið hefur til mik­illa átaka á milli mót­mæl­enda og lög­reglu­manna en nákvæm tala yfir þá sem hafa slasast liggur ekki fyrir. Kveikt hefur verið í bílum víðs­vegar um borg­ina auk þess sem rúður ýmissa banka hafa verið brotnar. Svartan reyk leggur yfir borg­ina.

Fjörutíu mót­mæl­endur hafa verið hand­teknir auk þess sem ell­efu, hið minnsta, slös­uð­ust þegar þeir féllu niður af vegg þegar lög­reglu­menn höfðu afskipti af þeim. Ekki eru til nákvæmar tölur um fjölda slas­aðra á meðal mót­mæl­enda en lög­reglan hefur gefið það út að 160 lög­reglu­menn hafi slasast á mót­mæl­unum, flestir þeirra lít­il­lega. Óeirð­arlö­reglu­menn eru vel tækjum búnir, í sér­út­búnum klæðn­aði og með hjálma auk þess sem þeir njóta aðstoðar trukka sem beita stærð­ar­innar vatns­byssum til þess að tvístra mann­skapnum. Svart­klæddir og grímu­klæddir mót­mæl­endur sem kenna sig við anar­k­isma [e. Black bloc] hafa verið áber­andi í fremstu víg­línu mót­mæl­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár