Óskar eftir fundi með dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun

Umboðs­maður barna hefur sent bréf til dóms­mála­ráð­herra og for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar þar sem hann óskar eftir fundi hið fyrsta til að fara yfir mál barna sem end­ur­senda á til Grikk­lands þar sem fjöl­skyld­unum hefur verið veitt alþjóð­leg vernd.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, dómsmála-, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, dóms­mála-, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Salvör Nordal, umboðs­maður barna, hefur óskað eftir fundi hið fyrsta með dóms­mála­ráð­herra og for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar til að fara yfir mál barna sem end­ur­senda á til Grikk­lands þar sem fjöl­skyld­unum hefur verið veitt alþjóð­leg vernd

Umboðs­maður óskar eftir því að á fund­inum verði farið yfir for­sendur þeirrar ákvörð­unar að halda áfram end­ur­send­ingum fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi og þær upp­lýs­ingar sem ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun búa yfir um aðstæður barna og fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.

Þörf á að taka til skoðunar meðferð þessara mála

Í bréfi umboðs­manna barna, sem dag­sett er 3. júlí 2019, til dóms­mála­ráð­herra og for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar segir að umboðs­maður barna óski einnig eftir því að ræða fyr­ir­komu­lag þjón­ustu við börn og fjöl­skyldur þeirra hér á landi á meðan umsókn sé til með­ferðar, með­ferð umsókna og máls­með­ferð­ar­tíma. Auk þess vill umboðs­maður ræða hvort að dóms­mála­ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun telji þörf á að taka til skoð­unar með­ferð þess­ara mála með hlið­sjón af samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins ásamt öðrum alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands á sviði mann­rétt­inda.

Jafn­framt segir í bréf­inu að á heima­síðu Útlend­inga­stofn­unar komi fram að end­ur­send­ingum hæl­is­leit­enda til Grikk­lands hafi verið hætt árið 2010 þar sem aðstæður í gríska hæl­is­kerf­inu hafi verið taldar ófull­nægj­andi. Þá komi þar einnig fram að end­ur­send­ingum þeirra sem fengið hafa alþjóð­lega vernd í lönd­unum tveimur hafi ekki verið hætt þar sem þeir ein­stak­lingar hafi fengið útgefin dval­ar­leyfi og fari því ekki í gengum hæl­is­kerfið þar í landi.

„Með hlið­sjón af því óskar umboðs­maður barna eftir því að á fund­inum verði farið yfir for­sendur þeirrar ákvörð­unar að halda áfram end­ur­send­ingum fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi og þær upp­lýs­ingar sem ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun búa yfir um aðstæður barna og fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi,“ segir að lokum í bréf­inu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár