Segir það stjórnvalda að ákveða hvort og hvernig dyflinnarreglugerðinni sé beitt

Efnt hefur verið til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun gegn brott­vísun barna á flótta en alls hefur 75 börnum verið synjað um vernd á þessu ári. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG, segir þessar ákvarð­anir stjórn­valda vera ómann­úð­legar.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður í flótta­manna­nefnd Evr­ópu­ráðs­þings, segir ljóst að stjórn­völd þurfi að hætta að vísa börnum úr landi. Hún segir í sam­tali við Kjarnann að það sé ómann­eskju­legt og ómann­úð­legt að íslensk stjórn­völd hafi vísað 75 börnum úr landi það sem af er ári. Hún bendir á að það sé stjórn­valda að ákveða hvort og þá hvernig dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni sé beitt en hún segir að dóms­mála­ráð­herra hafi túlkað hana til hins ítrasta á síð­ustu árum.

Send aftur til Grikklands

Stundin greindi frá því í gær að kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur úrskurðað að Shanhaz Safari og börn hennar tvö, Zainab og Amir, fái ekki alþjóð­lega vernd hér á landi. Fái úrskurð­ur­inn að standa mun fjöl­skyldan þurfa að fara í flótta­manna­búðir í Grikk­landi. Samkvæmt umfjöllun Stund­ar­innar hafa íslensk stjórn­völd hafnað því að taka mál fjöl­skyld­unnar til efn­is­legrar með­ferðar á þeim for­sendum að fjöl­skyldan hafi þegar fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.

Búið er að sækja um end­ur­upp­töku í máli fjöl­skyld­unnar í tvígang en í báðum til­vikum hefur þeim verið hafnað. Í seinni upp­töku­beiðn­inni var byggt á því mati sál­fræð­ings að ef brott­vísun yrði fram­kvæmd yrði Zainab fyrir sál­rænum skaða. Á það var hins vegar ekki fall­ist og beiðn­inni hafnað í lok síð­asta mán­aðar. Ef ákvörðun íslenskra stjórn­valda fær að standa verður fjöl­skyld­unni vísað úr landi í næstu viku.

Enn fremur var greint frá því á mánu­dag­inn síð­asta að vísa átti afgönsku drengj­unum Mahdi og Ali Sarwary ásamt föður þeirra úr landi en brott­vísun þeirra til Grikk­lands var frestað vegna mik­ils kvíða hjá öðrum dreng­unum. Ekki er þó vitað hvenær brott­vísun barn­anna mun fara fram en sam­tökin No Borders Iceland telja það muni ger­ast seinna í vik­unni.

75 börnum synjað um vernd á þessu ári

[links]Í kjöl­far frétta­flutn­ings af þessum tveimur málum hafa stjórn­völd verið harka­lega gagn­rýnd á sam­fé­lags­miðlum og þing­menn Sam­fylkar­innar meðal ann­ars skorað á stjórn­völd að end­ur­skoða stefnu sína í útlend­inga­málum. Þá hefur verið boðað til mót­mæla­göngu á morgun klukkan 17.00 þar sem fólk er hvatt til þess að ganga fylktu liði frá Hall­gríms­kirkju að Aust­ur­velli til að mót­mæla brott­vís­unum barna á flótta.

Í yfir­lýs­ingu UNICEF vegna brott­vís­unar barna á flótta frá Íslandi segir að end­ur­send­ingum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd til Grikk­lands frá Íslandi var hætt árið 2010 vegna þess að aðstæður í gríska hæl­is­kerf­inu voru taldar ófull­nægj­andi og sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni hefur ekki verið talin ástæða til að end­ur­skoða þá afstöðu.Hins vegar segja sam­tökin að end­ur­send­ingum til Grikk­lands hafi ekki verið hætt hafi börnin þegar hlotið alþjóð­lega vernd þar í landi.

Samtökin segja að þetta sé gert þrátt fyrir að alþjóða­stofn­anir upp­lýsi með reglu­bundnum hætti um slæma stöðu barna á flótta á Grikk­landi. Fjöl­skyldur búi víða í tjald­búðum og aðeins rúmur helm­ingur barn­anna fái aðgang menntun. For­eldrar hafai­ekki mögu­leika á að sækja vinnu og sjá fjöl­skyldu sinni far­borða.

„Í ljósi skyldu stjórn­valda til að meta það sem barni er fyrir bestu, er ekki ásætt­an­legt að hags­munir barn­anna séu metnir ólíkir á grund­velli laga­legrar stöðu þeirra ein­göngu, það er hvort þau eru umsækj­endur um vernd eða með stöðu flótta­fólks, þegar eng­inn raun­veru­legur munur er mögu­leikum þeirra til lífs og þroska í Grikk­landi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Það sem af er árs 2019, hafa stjórn­völd afgreitt umsóknir 105 barna sam­kvæmt töl­fræði á heim­síðu Útlend­inga­stofn­unar. Þarf af hafa 30 börn fengið vernd eða mann­úð­ar­leyfi hér á landi, 75 börnum hefur hins vegar því verið synjað um vernd, og þar af fengu 15 börn synjun á grund­velli verndar í öðru landi.

„UNICEF á Íslandi skorar á stjórn­völd að taka mót­töku barna sem sækja um alþjóð­lega vernd til end­ur­skoð­unar sam­hliða þeirri end­ur­skoðun sem á sér stað í mál­efnum barna almennt. Þar er eitt af brýn­ustu verk­efn­unum að bæta stefnu­mótun, þekk­ingu og verk­ferla sem varða mat á því sem barni er fyrir bestu,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Helmingur fylgdarlausa barna hverfur

Þungum áhyggjum var lýst yfir stöðu fylgd­ar­lausa barna í Evrópu á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í síð­ustu viku. Helm­ingur barna sem koma fylgd­ar­laus til Evrópu hverfur af mót­töku­mið­stöðvum innan tveggja sól­ar­hringa. Þau eru oft fórn­ar­lömb mansals, þrælk­unar og kyn­ferð­is­of­beldis. Skýrsla sem Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, vara­for­seti Evr­ópu­ráðs­þings­ins og þing­maður VG, vann fyrir Evr­ópu­ráðs­þingið varð grunnur að ályktun sem sam­þykkt var á þing­inu ein­róma.

Í skýrsl­unni eru lagðar til breyt­ingar á lögum ríkj­anna til að veita börnum á flótta aukin rétt­indi. Meðal þess sem álykt­unin felur í sér er sú krafa að börn fái alltaf opin­beran fylgd­ar­mann sem yfir­völd útvegi. Slík fylgd getur komið í veg fyrir að börnum sé rænt og þau seld í kyn­lífs­þrælkun eða beitt kyn­ferð­is­of­beldi. Einnig eru til­mæli í skýrsl­unni til stjórn­valda um póli­tíska stefnu­mörkun, þar á meðal um frá­vísun flótta­barna og aukin fram­lög á fjár­lögum til mála­flokks­ins, börnum til heilla.

Stjórnvalda að ákveða hvort Dyflinnarreglugerðinni sé beitt

Rósa Björk segir í sam­tali við Kjarnann að ljóst sé að stjórn­völd þurfi að hætt að vísa börnum úr landi. Hún segir þetta snú­ast um póli­tískan vilja og bendir á að á síð­ustu árum hafi dóms­mála­ráð­herrar túlkað Dyfl­inna­reglu­gerð­ina til hins ítrasta. „Það er ómann­eskju­legt og ómann­úð­legt að íslensk stjórn­völd hafi vísað 75 börnum frá landi aðeins á þessu ári,“ segir Rósa Björk

Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin, með síð­ari breyt­ingum, felur í sér við­mið­anir og fyr­ir­komu­lag við að ákvarða hvaða Schengen-ríki beri ábyrgð á með­ferð hæl­is­um­sóknar sem ein­stak­lingur leggur fram í einu aðild­ar­ríkja Schengen-svæð­is­ins. Þannig er stjórn­völdum heim­ilað að senda við­kom­andi hæl­is­leit­anda aftur til þess Schengen-ríkis sem hann kom fyrst til. Í nýj­ustu Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni er þó kveðið á um að ekki megi senda hæl­is­leit­anda aftur til ríkis þar sem hætta er á að hann sæti ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð og bann hefur verið lagt við flutn­ingum hæl­is­leit­enda til Grikk­lands næst­kom­andi tvö ár. Samkvæmt yfir­lýs­ingu UNICEF hefur end­ur­send­ingum til Grikk­lands hins vegar ekki verið hætt hafi börnin þegar hlotið alþjóð­lega vernd þar í landi.

Rósa Björk bendir aftur á móti á að sam­kvæmt reglu­gerð­inni sé mögu­legt að halda vernd­ar­hendi yfir börnum og fólki í við­kvæmri stöðu. „Það er stjórn­valda að ákveða hvort Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin sé yfir­höfuð notuð og ef svo er hvernig hún er túlkuð.“

Aðspurð segir hún að auð­vitað sé þrýst­ingur innan Vinstri grænna þegar kemur að þessum mála­flokki. Hún segir að flokk­ur­inn sé með lands­fund­ar­á­lykt­anir og stefnur á þann veg að taka á móti flótta­fólki og þeim sem leita eftir alþjóð­legri vernd á mann­eskju­legan og mann­úð­legan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár