Nefnd til tryggja starfsemi starfandi stjórnmálaflokka sett á laggirnar

Full­trúar sex stjórn­ar­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi fóru fram á við­bóta­fram­lag til stjórn­mála­flokk­anna sjálfra. Nefnd hefur nú verðið skipuð til að end­ur­skoða lög um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda.

Skipun nefndar um end­ur­skoðun laga um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og um upp­lýs­inga­skyldu þeirra, var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem for­sæt­is­ráðu­neytið sendi frá sér í dag.

Mark­miðið með nefnd­inni er meðal ann­ars að leita leiða til að tryggja fjár­mögnun, sjálf­stæði og lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð og gagn­sæi í starf­semi allra starf­andi stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi, óháð stærð þeirra, segir í til­kynn­ing­unni.

Í frétt Kjarnans sem birt­ist í fyrra­dag kemur fram að full­trúar sex stjórn­ar­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi hafi farið fram á að stjórn­mála­flokkar fái 362 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag á fjár­lögum næsta árs til við­bótar við þær 286 millj­ónir króna sem flokk­arnir áttu að fá.

Heild­ar­fram­lag til þeirra, verði erindi flokk­anna sam­þykkt, verður þá 648 millj­ónir króna. Fram­lagið mun því aukast um 127 pró­sent ef af hækk­un­inni verður.

Tækifæri til að jafna aðstöðu flokkanna

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins kemur jafn­framt fram að tölu­verðum hluta af fram­lögum rík­is­ins til stjórn­mála­flokka sé ráð­stafað í kostn­að­ar­liði sem eru óháðir fylgi eða fjölda þing­manna. Þar megi nefna skrif­stofu­rekstur, félags­heim­ili, félaga­tal, lág­marks starfs­manna­hald og lög­bundna skyldu til bók­halds og end­ur­skoð­unar á árs­reikn­ingum sem skila ber ár hvert til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Með fjölgun flokka á Alþingi hafi hlut­fall fjár­muna sem varið er í rekstur á grunn­stoðum flokk­anna hækkað svo um munar en á móti hafa fram­lög lækkað.

Með end­ur­skoðun lag­anna gef­ist tæki­færi til að jafna aðstöðu flokk­anna að þessu leyti, óháð stærð þeirra, sem felur sér í lagi í sér auk­inn stuðn­ing við smærri flokka.

„Gert er ráð fyrir að í nefnd­inni eigi sæti full­trúar allra stjórn­mála­sam­taka, sem sæti eiga á Alþingi, auk full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem stýrir nefnd­inni, full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, en lög um fjár­mál stjórn­ar­mála­sam­taka heyra sam­kvæmt for­seta­úr­skurði undir það ráðu­neyti, og full­trúi Rík­is­end­ur­skoð­unar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár