Vilja að framlög til stjórnmálaflokka verði aukin um 362 milljónir króna

Fram­kvæmda­stjórar sex stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á þingi hafa skrifað undir erindi þar sem farið er fram á að fram­lög til stjórn­mála­flokka verði hækkuð úr 286 millj­ónum króna næsta ári í 648 millj­ónir króna.

Full­trúar sex stjórn­ar­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi hafa farið fram á að stjórn­mála­flokkar fái 362 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag á fjár­lögum næsta árs til við­bótar við þær 286 millj­ónir króna sem flokk­arnir áttu að fá. Heild­ar­fram­lag til þeirra, verði erindi flokk­anna sam­þykkt, verður þá 648 millj­ónir króna. Fram­lagið mun því aukast um 127 pró­sent ef af hækk­un­inni verður.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legu erindi fram­kvæmda­stjór­anna sex sem sent var fjár­laga­nefnd Alþingis 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn, og Kjarninn hefur undir höndum. Fram­kvæmda­stjór­arnir sex eru Ásgeir Run­ólfs­son, full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­reisnar, Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vinstri grænna, Einar Gunnar Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, Svanur Guð­munds­son, full­trúi Mið­flokks­ins, og Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hvorki Píratar né Flokkur fólks­ins skrif­uðu sig á erindið.

Kallað eftir „leiðréttingu“

Erindið ber yfir­skrift­ina „Nauð­syn­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­mála­sam­taka“.

Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­mála­flokka verði „leið­rétt“. Þar segir: „Með lögum um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og um upp­lýs­inga­skyldu þeirra, sem tóku gildi árið 2007, átti að treysta rekstr­ar­grund­völl stjórn­mála­flokka með fjár­fram­lögum frá rík­inu sam­hliða því að fram­lög frá ein­stak­lingum og lög­að­ilum voru tak­mörkuð. Frá því að lögin komust til fram­kvæmda hafa fram­lögin lækkað að raun­virði ár frá ári. Þetta hefur haft mikil áhrif á starf­semi stjórn­mála­flokka til hins verra. Þess vegna erum við und­ir­rituð sam­mála um nauð­syn þess að leið­rétta fram­lögin. Að óbreyttu er ekki hægt að upp­fylla mark­mið lag­anna um að ,,auka traust á stjórn­mála­starf­semi og efla lýð­ræðið“. Því er hér farið fram á leið­rétt­ingu sam­kvæmt vísi­tölum frá árinu 2008 sem nemur 362 millj­ónum til við­bótar lið 05.4 Stjórn­sýsla rík­is­fjár­mála, 09-999 Ýmislegt nr. 118 í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2018.“

Sá liður er upp á 286 millj­ónir króna og því myndi heild­ar­fram­lag til stjórn­mála­flokka fara í 648 millj­ónir króna.

Segja lýðræðið eiga betra skilið

Í grein­ar­gerð sem fylgir erind­inu segir að sú upp­hæð sem stjórn­mála­flokkum sé ætluð á fjár­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­mála­starf um allt land, jafnt á sviði lands­mála og sveit­ar­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­burðar má nefna að dóms­mála­ráðu­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­kosn­ing­anna á síð­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­ónir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­mála­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­magn á við helstu hags­muna­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­trúa á Alþingi.

Til sam­an­burðar má 1 geta að Samtök atvinnu­lífs­ins eru með 30 starfs­menn, Samtök iðn­að­ar­ins 16, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­ingur við nýsköpun, þróun, sér­fræði­þekk­ingu og alþjóða­tengsl eng­inn inni í stjórn­mála­sam­tök­unum; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­mála­flokka og að upp­fylla mark­mið lag­anna. Lýðræðið á Íslandi á betra skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár