Ríkisstjórnin með tilbúnar áætlanir ef rekstur WOW air stöðvast

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir stjórn­völd vera við­búin ef rekstur WOW air stöðvast. Hann segir þó ekki rétt­læt­an­legt að setja skattfé inn í áhættu­rekstur sem þennan.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Skjáskot/Alþingi

Rík­is­stjórnin hefur í marga mán­uði fylgst náið með þeirri stöðu sem upp er komin á flug­mark­aði og er hún með til­búnar áætl­anir ef rekstur WOW air stöðvast. Þetta kemur fram í máli Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag.

„Við höfum haft sér­stakan starfs­hóp að störfum í marga mán­uði sem hefur und­ir­búið við­bragðs­á­ætlun stjórn­valda eftir ólíkum sviðs­myndum. Ég hef sagt það nokkrum sinnum opin­ber­lega að ég telji það ekki rétt­læt­an­legt að setja skattfé inn í áhættu­rekstur eins og þennan. Og þess vegna er það ekki hluti af okkar áætl­unum að gera neitt slíkt,“ segir Bjarni.

Hann telur hins vegar að stjórn­völd þurfi að vera við­búin ef ein­hver meiri háttar röskun verður, meðal ann­ars til þess að huga að orð­spori lands­ins og vegna þeirrar áhættu sem gæti fylgt rösk­un­inni. Eins nefnir Bjarni stöðu far­þega og segir hann að stjórn­völd þurfi að vera við­búin að greiða úr stöð­unni ef á þarf að halda. „En þær aðstæður hafa ekki enn skap­ast, sem betur fer. En við erum við­búin því ef það ger­ist,“ segir hann.

Mikil óvissa ríkir nú um fram­tíð flug­fé­lags­ins WOW air en Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, reynir til þrautar að bjarga flug­fé­lag­inu eftir að það slitn­aði upp úr við­ræðum við Icelandair Group í gær. Sam­kvæmt til­kynn­ingu WOW air frá því í gær vinnur félagið nú að því að ná sam­komu­lagi við meiri­hluta lán­ar­drottna sinna um að skuldum félags­ins verði að stórum hluta umbreytt í hlutafé og að sömu aðilar tryggi félag­inu fjár­magn til rekstr­ar­ins uns það nái „sjálf­bærum rekstri til fram­tíð­ar­“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár