Máli hluthafa Brúneggja gegn RÚV og Matvælastofnun vísað frá dómi

Héraðs­dómur Reykja­víkur vísaði í dag frá máli vegna rúmlega fimm ára gamallar umfjöllunar Kastljóss um eggja­fram­leiðandann Brúnegg ehf. Fyrr­verandi hluthafar Brúneggja gerðu að mati dómsins ekki skýra grein fyrir tjóni sínu vegna umfjöll­un­ar­innar.

Eggin brúnu frá Brúnegg ehf.
Eggin brúnu frá Brúnegg ehf. Mynd: Úr safni

Skaða­bótamáli sem félög tengd eggja­fram­leiðandanum Brúnegg ehf. höfðuðu gegn Ríkis­útvarpinu og Matvæla­stofnun var í dag vísað frá í Héraðs­dómi Reykja­víkur. Félögin Bali ehf. og Geysir-Fjár­festingar­félag ehf., sem áður voru hluthafar í Brúneggjum, þurfa að greiða bæði RÚV og Matvæla­stofnun 400.000 kr. hvoru um sig í máls­kostnað.

Málið varðar umfjöllun RÚV um Brúnegg, sem birtist í þætti Kastljóss 28. nóvember 2016, en í þættinum var sagt frá því að Brú­­­­negg hefði, að mati Matvæla­stofnunar, blekkt neyt­endur árum saman með því að not­­­­ast við merk­ingar sem héldu því fram að fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins á brúnum eggjum væri vist­væn og að varp­hænur þess væru frjáls­­­­ar.

Í krafti þess kost­uðu eggin um 40 pró­­­­sent meira en þau egg sem flögg­uðu ekki slíkri vott­un. Kast­­­­ljós fékk aðgang að gögnum um afskipti Mat­væla­stofn­unnar af Brú­­­­neggjum og í þeim kom í ljós að stofn­unin hafði í tæpan ára­tug haft upp­­­­lýs­ingar um að Brú­­­­negg upp­­­­­­­fyllti ekki skil­yrði sem sett voru fyrir því að merkja vörur sem vist­væn­­­­ar. Það væri því að blekkja neyt­end­­­­ur. Atvinn­u­­­­vega­ráðu­­­­neytið hafði líka þessar upp­­­­lýs­ing­­­­ar, en neyt­endum var ekki greint frá þeim.

Tryggvi Aðal­björns­son fékk Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2016 fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku vegna umfjöll­unar sinnar um fyr­ir­tækið. Hægt er að horfa á umfjöll­un­ina í heild sinni hér.

Allar stærstu versl­un­­­ar­keðjur lands­ins, þar á meðal lág­vöru­versl­anarisarnir Bónus og Krón­an, tóku Brú­­­negg, sem samkvæmt því sem fram kemur í dómi héraðdóms var með um 20 prósent markaðs­hlutdeild, úr sölu hjá sér eftir Kast­­­ljós-þátt­inn.

Fyrir vikið hrundu tekjur fyr­ir­tæk­is­ins mjög hratt, sem leiddi til gjald­þrots snemma árs 2017. Fyrr á árinu sagði Þóra Arnórs­dóttir, fyrr­verandi ritstjóri Kastljóss, frá því að fyrr­verandi hluthafar Brúneggja hefðu lagt fram skaða­bótakröfur fyrir dómi vegna þessarar umfjöllunar frá 2016.

Í kröfum fyrr­verandi hluthafa Brúneggja fyrir dómi sagði að umfjöllunin hefði verið „ósann­gjörn, röng og afar villandi“ og hefði byggst á gömlum athuga­semdum frá Matvæla­stofnun, sem búið hefði verið að bregðast við. Í umfjölluninni hefði ekki verið skeytt um hver staða mála hefði verið hjá Brúneggjum á þeim tíma er þátturinn var sýndur og að eggja­fram­leiðandinn hefði ekki verið upplýstur um eðli umfjöllunarinnar áður en þátturinn fór í loftið.

Í niður­stöðu Héraðs­dóms Reykja­víkur í málinu segir að mála­tilbúnaður hlut­hafanna fyrr­verandi hafi ekki verið skýr í gríðar­langri stefnu málsins. Þar hefði einungis verið í örfáum máls­greinum vikið að því af hverju dómurinn ætti að viðurkenna skaða­bótaábyrgð RÚV og Matvæla­stofnunar gagnvart félögunum Bala og Geysi-Fjár­festinga­félagi.

Þessir fyrr­verandi hluthafar Brúneggja eru í niður­stöðu dómsins ekki sagðir hafa gert grein fyrir grundvallar­atriðum varðandi tjón sitt og tengslum þess tjóns við atvik málsins. Því eru kröfur þeirra ekki taldar tækar til úrlausnar fyrir dómi, og málinu vísað frá, sem var aðalkrafa bæði RÚV og Matvæla­stofnunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár