Eigendur Brúneggja stefna vegna fjögurra ára gamallar umfjöllunar

Meira en fjórum árum eftir að verðlauna­umfjöllun um Brúnegg birtist hefur þeim sem stóðu að umfjöll­un­inni verið stefnt. Ritstjóri Kveiks segir að tilraunir Samherja til að sverta mannorð blaða­manna séu til skoðunar hjá alþjóða­samtökum blaða­manna.

Brúneggjamálið vakti mikla athygli síðla árs 2016. Fyrirtækið fór í þrot í kjölfar þess.
Brú­neggja­málið vakti mikla athygli síðla árs 2016. Fyr­ir­tækið fór í þrot í kjöl­far þess. Mynd: Úr safni

Eigendur Brúneggja hafa stefnt RÚV og Matvæla­stofnun vegna umfjöllunar um fyrir­tækið fyrir rúmum fjórum árum síðan. Frá þessu greindi Þóra Arnórs­dóttir í viðtali við Rás 2 í morgun.

Þóra, sem er í dag ritstjóri frétta­skýringa­þáttarins Kveiks, sagði að stefnan hefði nýlega borist og að hún sé 45 blaðsíður. Lögaðilarnir sem stefna eru félögin Bali ehf. og Geysir fjár­festinga­félag ehf., í eigu bræðranna sem áður áttu Brúnegg. Þrotabú Brúneggja framseldi þeim allar skaða­bótakröfur auk þess sem stefnan fjallar um meint tjón sem stefnendurnir telja sig persónu­lega hafa orðið fyrir. Aðalkrafa þeirra er að skaða­bótaskylda RÚV og Matvæla­stofnunar verði viðurkennd.

Þóra segir í viðtalinu að mikil vinna fari í að verjast svona málsóknum, sem hún hefur engar áhyggjur af að muni bera árangur. „En þetta eru nokkrar vikur af vinnu fyrir okkur. Við gerum ekkert annað á meðan. Við fram­leiðum ekki fréttir á meðan.“ Auðvitað eigi fólk rétt á því að fara fyrir dómstóla til að sækja rétt sinn ef því finnst á sér brotið. „Þarna eru bara ekki forsendur fyrir því.“

Tryggvi Aðalbjörnsson fékk Blaðamanna­verðlaun ársins 2016 fyrir rannsóknar­blaða­mennsku vegna umfjöllunar sinnar um fyrir­tækið Brúnegg. Hægt er að horfa á umfjöllunina í heild sinni hér.

Tekið til gjaldþrotaskipta 2017

Brúnegg var tekið til gjaldþrota­skipta snemma árs 2017. Það gerðist í kjölfar þess að nær öll eggjasala Brú­neggja stöðv­að­ist eftir að Kast­ljós á RÚV fjall­aði um starf­sem­ina og for­­­dæma­­­laus afskipti Mat­væla­­­stofn­unar af eggja­­­búum Brú­­­neggja í nóv­em­ber 2016.

Í þætt­inum kom fram að Brú­­­negg hefði, að mati stofn­un­­­ar­inn­­­ar, blekkt neyt­endur árum saman með því að not­­­ast við merk­ingar sem héldu því fram að eggja­fram­­­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins væri vist­væn og að varp­hænur þess væru frjáls­­­ar. Í krafti þess kost­uðu eggin um 40 pró­­­sent meira en þau egg sem flögg­uðu ekki slíkri vott­un. Kast­­­ljós fékk aðgang að gögnum um afskipti Matvæla­stofnunnar af Brú­­­neggjum og í þeim kom í ljós að stofn­unin hafði í tæpan ára­tug haft upp­­­lýs­ingar um að Brú­­­negg upp­­­­­fyllti ekki skil­yrði sem sett voru fyrir því að merkja vörur sem vist­væn­­­ar. Það væri því að blekkja neyt­end­­­ur. Atvinn­u­­­vega­ráðu­­­neytið hafði líka þessar upp­­­lýs­ing­­­ar, en neyt­endum var ekki greint frá þeim.

Brú­­­negg ehf. hafði hagn­­­ast um tugi millj­­­óna á ári síðustu árin sem fyrir­tækið var í starfsemi. Til að mynda var hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins tæp­­­lega 42 millj­­­ónir króna 2015 og tæp­­­lega 30 millj­­­ónir árið 2014. Sam­tals var hagn­aður fyrir­tækisins á árunum 2009 til 2016 vel yfir tvö hund­ruð millj­­­ónir króna. Bræð­­­urnir Krist­inn Gylfi Jóns­­­son og Björn Jóns­­­son áttu fyr­ir­tækið í gegnum einka­hluta­­­fé­lög sín, og þessi félög högn­uð­ust sam­an­lagt um tæp­­­lega hund­rað millj­­­ónir króna 2015.

Allar stærstu versl­un­­ar­keðjur lands­ins, þar á meðal lág­vöru­versl­anarisarnir Bónus og Krón­an, tóku Brú­­negg úr sölu hjá sér eftir Kast­­ljós-þátt­inn og fyrir vikið hrundu tekjur fyrir­tækisins mjög hratt, sem leiddi til gjald­þrots snemma árs 2017.

Herferð Samherja á hendur Helga og Aðalsteini

Þóra ræddi líka Samherja­málið svokallaða í viðtalinu í morgun, en Kveikur greindi í nóvember 2019 frá meintum mútu­greiðslum, skatts­vikum, peninga­þvætti og öðrum mögulegum brotum sem grunur er um að framin hafi verið í alþjóðlegri starfsemi Samherja, sérstak­lega í tengslum við umsvif fyrir­tækisins í Namibíu.

Samherji brást mjög harkalega við umfjölluninni og hefur meðal annars látið framleiða röð myndbanda þar sem látið er að því liggja að Kveikur hafi sýnt af sér óvönduð vinnu­brögð og að annarlegar hvatir frétta­mannanna sem unnu umfjöllunina hafi verið ráðandi í henni.

Þóra segir að þetta séu óvenju harkaleg viðbrögð. Það vinni vissulega enginn í þætti eins og Kveik, þar sem stungið er á kýlum, til að afla sér sérstakra vinsælda. Frétta­menn þáttarins taki hins vegar almannahags­muna­gæslu­hlutverk sitt mjög alvarlega. Til þess þurfi þykkan skráp og standa með því sem viðkomandi er að gera hverju sinni. „Samherji fer út fyrir öll mörk með þessari herferð á hendur Helga Seljan og Aðalsteini Kjartans­syni,“ segir Þóra.

Hún segir að Samherja hafi alltaf staðið til boða að koma sínum sjónar­miðum á framfæri í þáttunum sem fjalla um starfsemi fyrir­tækis, en því hafi alltaf verið hafnað. „Þess í stað fara þeir þessa leið að birta myndbönd á Youtube með ómældu fjármagni til að sverta mannorð blaða­mannanna.“

Þetta hafi áhrif á aðra blaðamenn ómeðvitað, að mati Þóru og geti stuðlað að sjálfs­ritskoðun. Að þeir hugsi með sér að þeir nenni ekki að standa í svona áreiti. „Spáið í því að vera með einhvern spæjara, Jón Óttar, alltaf á kaffi­húsinu þínu á morgnanna, hvíslandi að þér „ég veit hvert uppljóstrarinn í Namibíu­málinu er fluttur“ og sendandi skilaboð, ógnandi, á Messenger og sms.“

Þetta er nýtt í íslensku fjölmiðla­umhverfi, segir Þóra. „Það er ástæða fyrir því að alþjóðleg samtök blaða­manna hafa verið að skoða þetta mál vegna þess að þetta er ekki eðlilegt framkoma í garð blaða­manna.“

Aðspurð vildi hún ekki segja hvað fælist í þeirri athugun. Það væri ekki hennar að lýsa því frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár